Fréttir
Netvís – Netöryggismiðstöð Íslands, Fjölmiðlanefnd og Menntavísindastofnun Háskóla Íslands birtu á dögunum sex nýjar skýrslur um upplifun og hegðun barna á netmiðlum. Þetta er í þriðja sinn sem Menntavísindastofnun Háskóla Íslands hefur unnið slíka rannsókn upp úr spurningalistum sem lagðir eru fyrir börn og ungmenni hér á landi. Rannsóknin var fyrst gerð árið 2021, endurtekin 2023 og nú eru birtar niðurstöður rannsóknargagna sem safnað var árið 2025.
Fyrirlögn könnunarinnar var rafræn með úrtaki skólanema á aldrinum 9 – 18 ára um land allt. Alls tóku 7.677 nemendur þátt, þar af voru 5.234 grunnskólanemar í 4. – 10. bekk og 2.443 framhaldsskólanemar.

Skýrslurnar fjalla m.a. um samfélagsmiðla, neteinelti, klámáhorf, tölvuleiki, foreldraeftirlit og gervigreind.
„Skýrslurnar veita góða innsýn í stafrænt umhverfi barna og ungmenna og ættu að nýtast foreldrum, fagfólki og öllum þeim sem starfa að velferð barna. Við hjá Netvís nýtum niðurstöðurnar til að sníða okkar fræðslu enn betur að þörfum barna,“ segir Skúli Bragi Geirdal, sviðsstjóri Netvís.
Skýrslurnar má nálgast á heimasíðu Netvís og hérna í meðfylgjandi töflu:
| Titill |
| Börn og netmiðlar: 1. hluti – Tækjaeign og samfélagsmiðlar |
| Börn og netmiðar: 2. hluti – Neteinelti og kynferðisleg komment |
| Börn og netmiðlar: 3. hluti – Foreldraeftirlit og netöryggi |
| Börn og netmiðlar: 4. Hluti – Nektarmyndir og áhorf á klám |
| Börn og netmiðlar: 5. Hluti – Tölvuleikir |
| Börn og netmiðlar: 6. Hluti – Gervigreind, fréttir og falsfréttir |
Nokkrar af helstu niðurstöðum:
Áhyggjur af áhrifum gervigreindar og gervigreindarlæsi
Um helmingur ungmenna hefur áhyggjur af áhrifum gervigreindar á fólk í framtíðinni en framhaldsskólanemar eru líklegri til að hafa slíkar áhyggjur en nemendur í 8.–10. bekk, eða 62% samanborið við 45%.
Hvað gervigreindarlæsi varðar er algengara að nemendur í 8.-10. bekk en framhaldsskólanemar telji sig geta greint með fullri vissu hvort myndir og myndbönd séu djúpfölsuð eða raunveruleg.
Strákar telja, frekar en stelpur, mikilvægt að fólk geti sagt það sem það vill á netinu, þó það móðgi aðra
Um eitt af hverjum fjórum ungmennum telja það mikilvægt að fólk geti sagt það sem það vill á netinu, jafnvel þótt það komi öðrum í uppnám eða móðgi það. Þetta viðhorf er algengast meðal stráka í framhaldsskóla en 46% þeirra sögðust sammála staðhæfingunni, samanborið við 16% stelpna á sama skólastigi.
Aukning í hatursorðræðu/tjáningu og umræðu um sölu á áfengi
Þeim hefur fjölgað sem sjá haturs- orðræðu á netinu sem beinist gegn ákveðnum þjóðfélagshópum. Hlutfall framhaldsskólanema sem sjá slíka hatursorðræðu á netinu jókst úr 25% árið 2023 í 53% árið 2025.
Þá hefur þeim framhaldsskólanemum fjölgað sem sjá umræðu um sölu á áfengi á netinu. Hlutfallið jókst úr 14% árið 2023 í 33% árið 2025.
Mikilvægi foreldra og kennara
Ungmenni sem segjast hafa fengið fræðslu um örugga netnotkun nefna helst foreldra sem fræðsluaðila (80%) en rúmur þriðjungur segja kennara sinn hafi kennt örugga netnotkun.
Um þriðjungur ungmenna forðast fréttir
Um þriðjungur ungmenna á öllum skólastigum reyna að forðast fréttir á því tímabili þegar könnun Netvís fór fram á haustmánuðum 2025.
Klámáhorf dregst saman
Áhorf á klám meðal ungmenna hefur dregist verulega saman frá 2021. Ekki eru merki þess að klámáhorf sé að færast niður í yngri aldurshópa.


Tíðni áhorfs virðist ekki vera meiri meðal framhaldsskólanema en nemenda á unglingastigi grunnskóla

Leitaðu á Netvís.is
Við notum vafrakökur til að bæta upplifun þína á síðunni og safna upplýsingum til að bæta efni síðunnar.