Vantar þig aðstoð?

1717 hjálparsími

112 í neyð

Fréttir

Fleiri greiða fyrir gervigreind en íslenska fréttamiðla 

Fjölmiðlanefnd og Netvís lagði fyrir spurningakönnun um hvernig og hvar fólk greiðir fyrir aðgengi afþreyingu, fréttum og fréttatengdu efni.   

Niðurstöðurnar sýna að mikill meirihluti greiðir fyrir erlendar efnisveitur á borð við Netflix og Disney+ (65%) en helmingur greiðir fyrir íslenskar efnisveitur, svo sem Símann eða Sýn (49%). 

Einn af hverjum fjórum með greiddan aðgang að gervigreindarmállíkani 

Athygli vekur að fjórðungur svarenda greiðir fyrir aðgang að gervigreindarþjónustu á borð við ChatGPT, Gemini eða Claude.  Tekjur og menntun virðast hafa áhrif á hvort greitt sé fyrir notkunina. Svarendur með hærri tekjur og þeir sem hafa lokið háskólamenntun eru talsvert líklegri en aðrir til að greiða fyrir slíka þjónustu. Þá eru svarendur á aldrinum 18–49 ára líklegri til að greiða fyrir slíka áskrift en eldri aldurshópar.  

Fleiri með greiddan aðgang að gervigreindarmállíkani en íslenskum fjölmiðlum 

Aðeins 14% svarenda greiða fyrir áskriftir að íslenskum fréttamiðlum og er vert að skoða aldursdreifingu sérstaklega. Einungis 1,2% svarenda á aldrinum 18-29 ára segist vera með greidda áskrift af íslenskum fréttamiðli. Hlutfallið hækkar eftir því sem svarendur eru eldri og er hæst meðal fólks 70 ára og eldra, eða 37%. Hlutfall svarenda sem greiða fyrir íslenska fréttamiðla hækkar einnig lítillega með aukinni menntun og hærri tekjum.  

Yngri kynslóðin greiðir frekar fyrir hlaðvörp en íslenska fjölmiðla 

Alls greiða 10% svarenda fyrir íslensk hlaðvörp. Aldursdreifingin er þar nær öfug við dreifinguna meðal áskrifenda íslenskra fréttamiðla. Um 20% svarenda á aldrinum 18–29 ára greiða fyrir íslenskt hlaðvarp, samanborið við tæp 3% þeirra sem eru 70 ára og eldri. 

Samanburður á niðurstöðum um íslenska fréttamiðla og íslensk hlaðvörp sýnir því skýran mun eftir aldri. Yngra fólk greiðir frekar fyrir íslensk hlaðvörp en íslenska fréttamiðla, en þessu er öfugt farið meðal eldri aldurshópa. 

Lágt hlutfall svarenda greiðir fyrir áskrift að erlendum fréttamiðlum eða erlendum hlaðvörpum. Þeir sem greiða ekki fyrir neina af þeim valkostum sem spurt var um eru einkum tekjulægri svarendur. Aldur virðist hins vegar ekki hafa marktæk áhrif á þær niðurstöður. 

Þessar niðurstöður eru hluti af umfangsmeiri könnun Maskínu, Netvís og Fjölmiðlanefndar. Skýrsla með ítarlegri niðurstöðum er væntanleg á næstu vikum. 

Könnun þessi er gerð af Maskínu fyrir Fjölmiðlanefnd og Netvís. Hún er um viðhorf fólks til fjölmiðla og þjóðaratkvæðagreiðslunnar þann 29. ágúst um hvort Ísland ætti að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. 

Könnunin var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóðhópur fólks (e. panel) sem dreginn er með tilviljun úr Þjóðskrá. Könnunin fór fram á netinu. Svarendur eru af öllu landinu og á aldrinum 18 ára og eldri. Við úrvinnslu voru gögnin vegin til samræmis við tölur Hagstofunnar þannig að hópurinn sem svarar endurspegla þjóðina út frá kyni, aldri, búsetu og menntun. Við vigtun gagna getur birst örlítið misræmi í fjöldatölum og hlutföllum sem orsakast af námunum.  

Gagnaöflun fór fram dagana 9. til 14. September 2026 og voru svarendur 1.003 talsins.   

Aðrar fréttir

Leitaðu á Netvís.is

Vilt þú fá nýjustu fréttir og fræðsluefni?

Fylltu út formið með upplýsingum um þig og við munum hafa samband við þig við fyrsta tækifæri.

Fyrirspurn um fræðslu

Fylltu út formið með upplýsingum um þig og við munum hafa samband við þig við fyrsta tækifæri.

Stjörnumerktar* línur er nauðsynlegt að fylla út.

Við höfum móttekið beiðnina!

Við notum vafrakökur

Við notum vafrakökur til að bæta upplifun þína á síðunni og safna upplýsingum til að bæta efni síðunnar.