Netvís – Netöryggismiðstöð Íslands hefur sett í loftið nýjan fræðsluvef um upplýsingaöryggi í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar sem fram fer 29. ágúst n.k. Tilgangur vefsins er að efla gagnrýna hugsun og miðlalæsi og hjálpa almenningi að greina atvik þegar reynt er að hafa óeðlileg áhrif á lýðræðislega umræðu.
Á vefnum er upplýst með aðgengilegum hætti um aðferðir sem gjarnan er beitt á netinu til að móta eða afvegaleiða samfélagsumræðu í lýðræðisríkjum. Einnig er fjallað um hvernig hægt er að greina slíkar aðferðir og bregðast við þeim til að draga úr áhrifum þeirra. Meðal viðfangsefna sem fjallað er um eru gervigreind, djúpfalsanir, bottar og upplýsingaóreiða sem er ætlað að höfða tilfinninga til fólks.
Fræðsluvefnum er ætlað að styðja við þá lögbundnu skyldu að efla þekkingu, hæfni og vitund almennings til öruggrar og ábyrgrar þátttöku í stafrænu samfélagi.
„Umhverfið sem við sækjum upplýsingar í á netinu hefur breyst gríðarlega hratt á síðustu árum. Tæknin þróast stöðugt og það er orðið auðveldara en áður að búa til og dreifa röngum eða villandi upplýsingum. Við vitum að stundum er það gert með það að markmiði að hafa áhrif á skoðanir fólks og þá sérstaklega í tengslum við lýðræðislega ferla eins og t.d. kosningar eða atkvæðagreiðslur. Þar kemur gagnrýnin hugsun og miðlalæsi sterkt inn sem mikilvægar varnir.
Það er einmitt markmið þessa fræðsluvefs að hjálpa fólki að efla gagnrýna hugsun og meta betur þær upplýsingar sem það rekst á á netinu. Við getum öll lagt okkar af mörkum til að draga úr áhrifum upplýsingaóreiðu. Við vonum að þessi vefur verði fólki góður stuðningur“, segir Skúli Bragi Geirdal, sviðsstjóri Netvís – Netöryggismiðstöðvar Íslands.
Fræðsluvefurinn er nú aðgengilegur á vef Netvís, https://netvis.is/thjodaroryggi/ en á vef Netvís er einnig að finna fjölbreytt fræðsluefni, rannsóknarskýrslur og aðrar upplýsingar um félagslegt netöryggi og miðlalæsi.
Þá opnaði einnig í dag kynningarvefur Landskjörstjórnar um þjóðaratkvæðagreiðsluna. Hann má nálgast á www.kosning.is. Þar eru veittar upplýsingar um málefnið þannig að kjósandi geti tekið upplýsta afstöðu til þeirrar spurningar sem borin er fram. Á vef þeirra er auk þess að finna ýmsar hagnýtar upplýsingar um framkvæmd kosninga.