Vantar þig aðstoð?

1717 hjálparsími

112 í neyð

Fréttir

Takið morgundaginn frá!

Alþjóðlegi netöryggisdagurinn (e. Safer Internet Day) verður haldinn hátíðlegur í tuttugasta og þriðja sinn á morgun 10. febrúar. Þemað í ár er „Snjöll tækni, öruggar ákvarðanir – örugg og ábyrg notkun gervigreindar“ og munu þjóðir um allan heim standa fyrir fjölbreyttri dagskrá því tengdu. Markmiðið með deginum er að vekja athygli á því hvernig við getum gert internetið að öruggari og betri stað fyrir alla, sérstaklega börn og ungmenni. Fjallað verður um bæði tækifæri og áskoranir stafrænnar tækni, m.a. notkun snjalltækja, samfélagsmiðla og gervigreindar, með sérstakri áherslu á öryggi, ábyrgð og stafræna velferð.

Í tilefni dagsins stendur Netvís fyrir opnum foreldrafundi á netinu frá kl. 12:00-13:00, þar sem öryggi barna og ungmenna á netinu verður til umræðu. Til kynningar á fundinum verður nýútgefin Verkfærakista foreldra, sem styður foreldra og aðstandendur í að efla félagslegt netöryggi barna sinna. Allir foreldrar og aðstandendur barna og ungmenna eru hvattir til að taka þátt. Hlekk á fundinn má finna hér.

Síðar sama dag, kl. 15:00–16:30, fer fram málþing í Hátíðarsal Háskóla Íslands undir yfirskriftinni Samfélagsmiðla- og snjallsímanotkun barna og ungmenna. Málþingið er hluti af fyrirlestraröð Menntavísindasviðs HÍ, Efst á baugi, og er haldið í samstarfi við Netvís og Fjölmiðlanefnd. Þar verður fjallað um samfélagsmiðlanotkun ungmenna, áreiti og netöryggi, auk notkunar á gervigreind og viðhorf til hennar. Þá verða kynntar nýjustu niðurstöður úr landskönnuninni Börn og netmiðlar, sem lögð var fyrir nemendur í grunn- og framhaldsskólum á aldrinum 9–18 ára í þriðja sinn haustið 2025. Málþinginu lýkur með innleggjum frá ungmennum og pallborðsumræðum. Viðburðurinn verður í beinu streymi og eru öll velkomin. Hlekk á streymið má finna hér.

Nánari upplýsingar má finna á vef Netvís og Háskóla Íslands.

Aðrar fréttir

Vilt þú fá nýjustu fréttir og fræðsluefni?

Fylltu út formið með upplýsingum um þig og við munum hafa samband við þig við fyrsta tækifæri.

Fyrirspurn um fræðslu

Fylltu út formið með upplýsingum um þig og við munum hafa samband við þig við fyrsta tækifæri.

Stjörnumerktar* línur er nauðsynlegt að fylla út.

Við höfum móttekið beiðnina!

Villa kom upp! Vinsamlegast reyndu aftur. 

Við notum vafrakökur

Við notum vafrakökur til að bæta upplifun þína á síðunni og safna upplýsingum til að bæta efni síðunnar.