Vantar þig aðstoð?

1717 hjálparsími

112 í neyð

SEXAN

Stuttmyndakeppni

Efnisyfrlit

Hvað er sexan?

Sexan er stuttmyndakeppni sem Neyðarlínan hefur haldið síðan 2023 ásamt samstarfsaðilum.

Því miður var ekki hægt að halda keppnina árið 2026. Fyrirkomulagið er í endurskoðun en stefnt er að því að keppnin komi aftur enn þá sterkari strax 2027.

Ekki hika við að hafa samband ef þið eruð með einhverjar spurningar.

Hvernig tek ég þátt?

Fyrirkomulag Sexunnar hefur verið einfalt. Þátttakendur fá fræðslu í skólum og/eða félagsmiðstöðvum um ákveðin viðfangsefni og fá tækifæri til að búa til og skila inn tilbúinni stuttmynd, hámark 3 mínútur að lengd.

Viðfangsefni keppninnar eru 4 birtingarmyndir haturstjáningu:

  • samþykki
  • nektarmynd
  • tæling
  • slagsmál ungmenna

Auk þess hefur verið opinn flokkur fyrir allt það sem þér finnst mikilvægt að allir krakkar í 7. bekk viti um.

Hvernig á myndin að vera?

  • Best er að hafa myndina í „landscape“ formatti (16:9) og að upplausnin sé í 1920x1080px eða hærri.
  • Settu lógó SEXUNNAR í lok myndarinnar (sem endaskilti). Hægt er að sækja það hér neðar á síðunni.
  • Mundu að skráin sem þú skilar þarf að sýna heiti stuttmyndar, nafn skólans þíns og bekkjarins.
Allt sem þú þarft að vita til að búa til stuttmynd er að finna hér!

Hvernig veit ég hvað viðfangsefnin þýða?

Hér fyrir neðan er skýr og einföld útskýring á hvað tæling, nektarmynd, samþykki og slagsmál ungmenna er. Mundu að góð stuttmynd sýnir hvað krakkar geti gert til að hjálpa þeim sem verða fyrir stafrænu ofbeldi.

Kennsluleiðbeiningar

xxx

Dómnefnd og sigurmyndir

Þátttakendur hafa haft frjálsar hendur með handritagerð, framkvæmd og eftirvinnslu. Hver skóli hefur mátt senda að hámarki 3 myndir í keppnina en dómnefnd skipuð fulltrúum ungmennaráðs, RÚV, MMS og kvikmyndagerðar valdi svo þrjár bestu stuttmyndirnar sem verða sýndar bæði í bíóhúsum, á vef UngRÚV og dreift í alla grunnskóla landsins sem fræðsluefni.

Vinningsmyndirnar 2025 voru sýndar í Bíóparadís á Barnakvikmyndahátíð í oktobór. Auk þess voru vinningsmyndirnar sendar í alla skóla á landinu og notaðar í fræðsluskyni fyrir 7. bekkinga.

Vinningashafar 2025

Njarðvíkurskóli er sigurvegari Sexunnar 2025!

Nú eru úrslit Sexunnar 2025 orðin ljós en það var Njarðvíkurskóli sem vann með stuttmyndinni Áhrif eineltis. Í öðru sæti var Hólabrekkuskóli með stuttmyndina Slagsmál en þriðja sæti hlaut Rimaskóli fyrir stuttmyndina Stafræn sár.

Hvatningarverðlaun Sexunnar eru einnig veitt fyrir eftirtektarverða tækninotkun, efnistök eða aðferðir. Í ár hlaut Hrafnagilsskóli Hvatningarverðlaun Sexunnar fyrir að tefla fram leikurum af erlendum uppruna í burðarhlutverk og sýna á skýran hátt hvernig ungmenni geta leitað aðstoðar í tilfellum stafræns ofbeldis.

Sexan er jafningjafræðsluverkefni sem ætlað er að fræða ungt fólk um birtingarmyndir stafræns ofbeldis. Viðfangsefni stuttmyndanna er tæling, nektarmynd, samþykki eða slagsmál ungmenna.

Hér fyrir neðan má sjá verðlaunamyndir Sexunnar 2025.

Áhrif eineltis
Njarðvíkurskóli
1. sæti
Slagsmál 
Hólabrekkuskóli
2. sæti
Stafræn sár
Rimaskóli
3. sæti
Neteinelti
Hrafnagilsskóli
Hvatningarverðlaun

Vinningashafar 2024

Smáraskóli vinningshafi Sexunnar 2024

Smáraskóli í Kópavogi var atkvæðamikill en nemendur í 7. bekk Smáraskóla hrepptu 1. sæti og 2. sætið auk hvatningarverðlauna.

Sigurmyndin heitir „Vinur í raun,“ stuttmyndin í 2. sæti heitir „Tæling“ og Í þriðja sæti var Hólabrekkuskóli með stuttmyndina „Samþykki.“

Hvatningarverðlaun Sexunnar 2024 voru veitt í fyrsta skipti en stuttmyndin „Segðu frá“ var best að mati dómnefndar.

Kvikmyndagerðarfólkinu tókst að varpa ljósi á þemað í keppninni en myndin hvetur ungmenni til að segja einhverjum frá, hvort sem það er lögregla, kennari eða vinur af því að það er besta leiðin til að hjálpa öðrum í erfiðum aðstæðum.

Vinur í raun
Smáraskóli
1. sæti
Tæling
Smáraskóli
2. sæti
Samþykki
Hólabrekkuskóli
3. sæti
Segðu frá
Smáraskóli
Hvatningarverðlaun

Vinningashafar 2023

Sexan stuttmyndakeppni var haldin í fyrsta skipti vorið 2023 og fór þátttaka fram úr björtustu vonum.

Selásskóli sigraði Sexuna 2023 með stuttmyndinni „Friend request.“ Tæling var viðfangsefni upprennandi kvikmyndagerðarkvennanna sem heita Karen, Agatha, Sara, Sigrún, Iza Sara, Anna, Dalía og Karmen.

Í öðru sæti var stuttmyndin „Samþykki“ frá Heiðarskóla, Reykjanesbæ og þriðja sæti hlaut Suðurhlíðarskóli fyrir stuttmyndina „Tæling.“

Við óskum sigurvegurum innilega til hamingju og þökkum öllum sem tóku þátt!

Friend Request
Selásskóli
1. sæti
Tæling
Heiðarskóli
2. sæti
Tæling
Suðurhlíðarskóli
3. sæti
Samfélagslöggan kynnir úrslit

Samstarfsaðilar

Ríkislögreglustjóri
Jafnréttisskóli Reykjavíkurborgar
Samband íslenskra sveitarfélaga
Jafnréttisstofa
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu
Barna- og fjölskyldustofa
RÚV
Fjölmiðlanefnd
Samskiptaráðgjafi íþrótta- og æskulýðsstarfs
Barnaheill
Heilsueflandi grunnskóli

Meira um sexuna

xxx

Vilt þú fá nýjustu fréttir og fræðsluefni?

Fylltu út formið með upplýsingum um þig og við munum hafa samband við þig við fyrsta tækifæri.

Fyrirspurn um fræðslu

Fylltu út formið með upplýsingum um þig og við munum hafa samband við þig við fyrsta tækifæri.

Stjörnumerktar* línur er nauðsynlegt að fylla út.

Við höfum móttekið beiðnina!

Við notum vafrakökur

Við notum vafrakökur til að bæta upplifun þína á síðunni og safna upplýsingum til að bæta efni síðunnar.