Frá orðum til aðgerða: Vitundarvakning um stafrænt ofbeldi meðal barna og ungmenna
Ríkislögreglustjóri og lögregluembættin hefja í dag vitundarvakningu um stafrænt ofbeldi meðal barna og ungmenna. Þá verður nýtt fræðsluefni um stafrænt ofbeldi birt í áföngum á stoppofbeldi.mms.is í október. Efnið er ætlað efri bekkjum grunnskóla og framhaldsskólum og á að auðvelda börnum, ungmennum og fullorðnum að þekkja stafrænt ofbeldi, ræða það og vita hvernig bregðast má við.
Vitundarvakningin er unnin í samstarfi við Miðstöð menntunar og skólaþjónustu (MMS), Barna- og fjölskyldustofu, Embætti landlæknis, Netvís (Fjölmiðlanefnd), Heimili og skóla, Kennarasamband Íslands, Neyðarlínuna, Samband íslenskra sveitarfélaga, Samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs og Taktu skrefið. Markmiðið er að fyrirbyggja stafrænt ofbeldi og að fagfólk, foreldrar og börn viti hvernig bregðast skuli við.
Stafrænt ofbeldi er hluti af veruleika margra barna. Í Íslensku æskulýðsrannsókninni 2025 voru nemendur spurðir hvort þau hefðu einhvern tímann um ævina verið beðin um að senda af sér nektarmyndir. Í 10. bekk svaraði tæplega helmingur stúlkna (45%) og um einn af hverjum sjö drengjum (15%) játandi. Það samsvarar um þriðjungi alls árgangsins, eða 30%. Þá hafa 38% nemenda í 10. bekk fengið óumbeðin klámfengin skilaboð.
Fram kemur í nýrri skýrslu ríkislögreglustjóra um kynferðisbrot á fyrri hluta ársins 2026 að lögreglu var tilkynnt um 93 brot vegna kynferðislegrar áreitni og stafrænna kynferðisbrota, sem er 60% fjölgun frá sama tímabili í fyrra. Um helmingur brotaþola í öllum tilkynntum kynferðisbrotum var undir 18 ára aldri.
Nýtt efni í hverri viku
Í hverri viku nú í október verður nýr fræðslupakki fyrir efri bekki grunnskóla og framhaldsskóla kynntur á stoppofbeldi.mms.is. Pakkarnir eru ætlaðir kennurum og öðru fagfólki til notkunar með nemendum á efri stigum grunnskóla og í framhaldsskólum.
Fjallað verður um:
deilingu nektarmyndefnis og kynlífskúgun
neteinelti
gervigreind og djúpfalsanir
stafrænt öryggi í ungum parasamböndum
Frekari verkfæri fyrir fagfólk og foreldra bætast við á næstu vikum. Samfélagslögreglan mun fylgja eftir efninu í samstarfi við skóla og frístundastarf í sínum umdæmum og kynna stutta viðbragðsþjálfun.