Vantar þig aðstoð?

1717 hjálparsími

112 í neyð

Fréttir

Aukinn kraftur í fræðslu um félagslegt netöryggi á Íslandi

Logi Einarsson, menningar- nýsköpunar- og háskólaráðherra og Elfa Ýr Gylfadóttir, framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar, undirrituðu í dag samstarfssamning um rekstur Netvís – Netöryggismiðstöðvar Íslands til þriggja ára. Samningurinn tengist aðgerðum í aðgerðaáætlun stjórnvalda í gervigreind og aðgerðaáætlun um málefni fjölmiðla.

Netvís – Netöryggismiðstöð Íslands heyrir undir Fjölmiðlanefnd og fer með samhæfingarhlutverk íslenskra samstarfsaðila á sviði netöryggis- og velferðarmála barna og ungmenna. Netvís hlaut nýlega vilyrði fyrir 55 millj. kr. árlegum styrk frá Evrópusambandinu, til þriggja ára, vegna þátttöku Íslands í verkefninu Safer Internet Centre. Verkefnið miðar að því að efla örugga, ábyrga og jákvæða netnotkun barna og ungmenna á Íslandi og styrkja viðbragðskerfi vegna skaðlegrar eða ólögmætrar netsamskiptahegðunar. Verkefnastyrkirnir eru fjármagnaðir af styrkjaáætlun Evrópusambandsins Digital Europe Programme (DIGITAL-2025-BESTUSE-08) sem styrkir sambærileg verkefni í öðrum Evrópulöndum. Forsenda þess að styrkur fáist er að aðildarríki fjármagni 50% af heildarkostnaði verkefnis. Verkefnið er nú þegar fjármagnað að hluta á fjárlögum og 20 milljón króna viðbótarframlag á ári tryggir því fulla þátttöku Íslands í evrópsku samstarfi um netöryggi og vernd barna á netinu.

Með þessum stuðningi verður Netvís kleift að setja aukinn kraft í fræðsluverkefni sem efla munu upplýsinga- og miðlalæsi og netöryggi barna og ungmenna um allt land. Hlutverk Netvís er jafnframt að stuðla að vitundarvakningu meðal almennings og miðla fræðslu til allra aldurshópa um upplýsinga- og miðlalæsi. Með stuðningi stjórnvalda er sérstaklega horft til þess að:

  • Efla alþjóðlegt samstarf og sýnileika Íslands innan ESB og EES í netöryggismálum barna og ungmenna.  
  • Tryggja fulla þátttöku Íslands í evrópsku netöryggis- og barnaverndarstarfi á netinu.
  • Auka getu Netvís og samstarfsaðila til að fylgjast með þróun, veita stuðning, fræðslu og viðbrögð við nýjum áskorunum í stafrænu umhverfi barna, m.a. vegna örrar þróunar á sviði gervigreindar.
  • Styrkja forvarnarstarf gegn neteinelti, kynferðisofbeldi og kynferðislegri áreitni, skaðlegu efni og mögulegum neikvæðum áhrifum gervigreindar á geðheilsu.
  • Stuðla að innlendri stefnumótun og menntun í stafrænni borgaravitund.
  • Leiða fræðslu um gervigreindarlæsi og áhrif gervigreindar á lýðræðismenningu um allt land.
  • Efla alþjóðlegt samstarf og sýnileika Íslands innan ESB og EES í netöryggismálum barna og ungmenna.


Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, Elfa Ýr Gylfadóttir fráfarandi framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar og Skúli Bragi Geirdal, sviðsstjóri Netvís – Netöryggismiðstöðvar Íslands við undirritun samningsins.

Aðrar fréttir

Leitaðu á Netvís.is

Vilt þú fá nýjustu fréttir og fræðsluefni?

Fylltu út formið með upplýsingum um þig og við munum hafa samband við þig við fyrsta tækifæri.

Fyrirspurn um fræðslu

Fylltu út formið með upplýsingum um þig og við munum hafa samband við þig við fyrsta tækifæri.

Stjörnumerktar* línur er nauðsynlegt að fylla út.

Við höfum móttekið beiðnina!

Við notum vafrakökur

Við notum vafrakökur til að bæta upplifun þína á síðunni og safna upplýsingum til að bæta efni síðunnar.