02.02.2026

Öryggi barna á neti – Verkfærakista foreldra

Foreldrafundur í hádeginu á netinu á alþjóðlega netöryggisdaginn 10. febrúar 2026
Clock 12:00 am
Location Á neti

Netvís stendur fyrir foreldrafundi á neti á alþjóðlega netöryggisdeginum, þann 10. febrúar, á milli kl. 12 og 13, þar sem kynnt verður nýútgefin Verkfærakista foreldra, sem styður foreldra til að auka félagslegt netöryggi barna sinna. Haukur Brynjarsson, sérfræðingur hjá Netvís, kynnir.

Allir foreldrar og aðstandendur barna og ungmenna eru hvattir til að sækja fundinn.

Hlekk á fundinn má finna hér.

Netvís – Netöryggismiðstöð Íslands (áður SAFT) sem sett hefur verið á stofn af Fjölmiðlanefnd, annast miðlalæsisfræðslu og vitundarvakningu um félagslegt netöryggi.