Vantar þig aðstoð?

1717 hjálparsími

112 í neyð

Viðburðir

Útvarpshúsið, Efstaleiti 1
2025-10-23
00:00

Útvarpsþing 2025

RÚV

Ríkisútvarpið heldur árlegt útvarpsþing, fimmtudaginn 23. október frá kl. 09.00-12.00 og fer fram í Útvarpshúsi, Efstaleiti 1. Yfirskriftin er Leiðin til okkar, þar sem rætt verður um hvernig dreifingu efnis fjölmiðla verður háttað í framtíðinni og hvernig fólk mun nálgast efni fjölmiðla. Efnið verður rætt út frá ýmsum tæknilegum og lögfræðilegum vinklum, en einnig út frá mismunandi viðtökumöguleikum notenda.

Fyrirlesarar eru Richard Waghorn, yfirtæknistjóri írska ríkisútvarpsins RTÉ, Halldóra Þorsteinsdóttir héraðsdómari, Skúli Bragi Geirdal sviðsstjóri Netvís, Gunnar Sigurjónsson framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs Sýnar, Logi Karlsson framkvæmdastjóri Tækniþróunar Símans og Hrefna Lind Ásgeirsdóttir framkvæmdastjóri stafrænnar þróunar RÚV.

Að erindum loknum verða umræður í pallborði.

Skráning fer fram hér.

Aðrir viðburðir

Vilt þú fá nýjustu fréttir og fræðsluefni?

Fylltu út formið með upplýsingum um þig og við munum hafa samband við þig við fyrsta tækifæri.

Fyrirspurn um fræðslu

Fylltu út formið með upplýsingum um þig og við munum hafa samband við þig við fyrsta tækifæri.

Stjörnumerktar* línur er nauðsynlegt að fylla út.

Við höfum móttekið beiðnina!

Við notum vafrakökur

Við notum vafrakökur til að bæta upplifun þína á síðunni og safna upplýsingum til að bæta efni síðunnar.