03.02.2026

Efst á baugi: Samfélagsmiðla- og snjallsímanotkun barna og ungmenna

Málþing um samfélagsmiðla- og snjallsímanotkun barna og ungmenna fer fram þriðjudaginn 10. febrúar í Hátíðarsal Háskóla Íslands, kl. 15:00–16:30.
Clock 3:00 pm
Location Hátíðarsalur Háskóla Íslands (aðalbygging)

Málþingið er hluti af fyrirlestraröð Menntavísindasviðs HÍ, Efst á baugi, og unnin í samstarfi við Netvís – Netöryggismiðstöð Íslands og Fjölmiðlanefnd í tilefni af alþjóðlega netöryggisdeginum 10. febrúar. Kynntar verða nýjustu niðurstöður úr landskönnuninni Börn og netmiðlar sem lögð var fyrir grunn- og framhaldsskólanema á aldrinum 9-18 ára í þriðja sinn haustið 2025. Fjallað verður um samfélagsmiðlanotkun ungmenna, áreiti og netöryggi, og notkun og viðhorf til gervigreindar. Að lokum fara fram innlegg frá ungmennum og pallborðsumræður.

Dagskrá:

15:00 – Opnunarávarp
Kolbrún Þ. Pálsdóttir, forseti Menntavísindasviðs HÍ
15:15 – Kynning á niðurstöðum
Ingibjörg Kjartansdóttir, verkefnisstjóri Menntavísindasviðs og Menntavísindastofnunar HÍ og Skúli Bragi Geirdal, sviðsstjóri Netvís – Fjölmiðlanefnd.
Kynntar verða niðurstöður um samfélagsmiðlanotkun ungmenna og viðhorf þeirra til áreitis og öryggis á netinu. Einnig verða kynntar niðurstöður um notkun ungmenna á gervigreind og sjónarmið þeirra til hennar.
15:35 – Viðhorf kennara og nemenda til snjallsímanotkunar
Svava Pétursdóttir, dósent við Menntavísindasvið HÍ kynnir niðurstöður úr rannsókn um snjallsímanotkun og reglur í skólum, byggða á viðtölum við kennara og nemendur í 5. og 9. bekk.
15:45 – Innlegg ungmenna
Fulltrúar úr ungmennaráði Samfés
15:50–16:30 – Pallborðsumræður um samfélagsmiðlanotkun, netöryggi og ábyrgð fullorðinna í umhverfi þar sem stafrænt líf ungmenna er sífellt stærri hluti af daglegu lífi.
Þátttakendur pallborðs:
Skúli Bragi Geirdal
Svava Pétursdóttir
Sindri Steinn Unnarsson og Kamilla Inga Ellertsdóttir, fulltrúar ungmenna

Þóra Jónsdóttir hjá Netvís – Netöryggismiðstöð Íslands og Fjölmiðlanefnd fundarstýrir.

Málþingið verður í beinu streymi.

Verið öll velkomin!