11.11.2025
Mannvænt kaffi

Mannvænt kaffi

Samtök um mannvæna tækni bjóða í spjall um mikilvægi siðferðis í tæknigeiranum.
Clock 5:00 pm
Location Snorrabraut 56, 105 Reykjavík

Samtök um mannvæna tækni bjóða í Mannvænt kaffi á Snorrabar miðvikudaginn 12. nóvember frá kl. 17-19. Um er að ræða óformlegt spjall um mikilvægi siðferðis í tæknigeiranum.

Vertu með í að byggja upp samfélag einstaklinga sem vilja sjá tækni þróast á ábyrgan hátt, með áherslu á velferð fólks og umhverfis. Öll áhugasöm hjartanlega velkomin.

Samtök um mannvæna tækni leggja áherslu á að móta og nýta tækni á siðferðislegan hátt, með það fyrir augum að setja velferð notenda, náttúru og samfélags í heild í forgang fram yfir einkahagsmuni og skammtímaávinning.

www.mannvaen.is