Hvernig hljómar þú? Málþing um haturstjáningu á netinu
Málþingið „Hvernig hljómar þú?“ fer fram í Öskju (N-132 í Háskóla Íslands) miðvikudaginn 28. október klukkan 12:30-16:30. Þemað er: haturstjáning á netinu.
Jón Gnarr opnar þingið áður en sérfræðingar stíga á svið og miðla þekkingu sinni á samskiptum og haturstjáningu á netinu. Einnig verða kynnt verkefni og árvekniátök sem eru ýmist í vinnslu eða farin af stað.
Skúli Bragi Geirdal fer með fundarstjórn.
Málþingið er hluti af árlegri Miðlalæsisviku, sem haldin er í fjórða sinn á Íslandi dagana 26.–31. október.
Viðburðurinn er opinn öllum og þátttaka er ókeypis. Sætafjöldi er þó takmarkaður og því er nauðsynlegt að skrá sig fyrir fram. Skráðu þig hér.