Vantar þig aðstoð?

1717 hjálparsími

112 í neyð

YouTube

Youtube er myndbandsveita þar sem notendur geta horft á, deilt og hlaðið upp myndböndum. Efnið spannar allt frá afþreyingu og tónlist yfir í kennsluefni og vídjóblogg (e. vlogs). Youtube er sá samfélagsmiðill sem er hvað mest notaður af börnum og ungmennum á Íslandi.

X

X (áður Twitter) er samfélagsmiðill sem byggir á stuttum textafærslum, myndum og myndböndum sem dreifast hratt í opnum straumi. Miðillinn er mikið notaður til umræðu um fréttir, stjórnmál og samfélagsmál. Miðillinn hefur breyst töluvert á undanförnum árum og hefur verið lögð áhersla á málfrelsi á miðlinum. Það hefur aukið magnið af fölsku og óviðeigandi efni.

Coverstar

Coverstar er forrit fyrir stutt myndbönd á samfélagsmiðlum sem lýsir sér sem barnvænt val við TikTok, en það hefur nokkrar áhættusama eiginleika. Notendur geta búið til og deilt stuttmyndböndum og flett í gegnum straum af myndböndum sem aðrir hafa búið til. Aðalsíðan inniheldur flipann ,,valinn“ og flipann ,,fylgjast með“ sem sýnir myndbönd frá þeim sem […]

Instagram

Instagram er samfélagsmiðill í eigu Meta sem byggir fyrst og fremst á myndum og myndböndum. Notendur geta deilt efni í „feed“, „stories“ og „reels“, sent skilaboð og fylgt öðrum notendum.

TikTok

TikTok er samfélagsmiðill þar sem notendur geta búið til og horft á stutt myndbönd (e. reels) um allt á milli himins og jarðar. Forritið byggir á öflugum algóritma sem sérvelur efni fyrir hvern notanda út frá breytum eins og kyni, aldri, áhugasviði o.s.frv.

Reddit

Reddit er umræðuvettvangur þar sem notendur eiga í samskiptum í alls kyns hópum (e. Subreddits). Hóparnir snúa að og fjalla um ákveðin efni svo sem heilsu, tölvuleikjum, íþróttum, ráðgjöf, stjórnmálum, húmor og fleira. Hóparnir eru yfirleitt opnir og getur hver sem er skoðað efnið þar inni. Það eru svo notendurnir sjálfir (moderators) sem stýra relgum […]

Discord

Discord er samskiptaforrit sem byggir á texta-, radd- og myndspjalli innan svokallaðra þjóna (e. servers). Upphaflega voru það helst tölvuleikjaspilarar sem notuðu Discord en í dag eru notendur mun fjölbreyttari hópur fólks.

Leitaðu á Netvís.is

Vilt þú fá nýjustu fréttir og fræðsluefni?

Fylltu út formið með upplýsingum um þig og við munum hafa samband við þig við fyrsta tækifæri.

Fyrirspurn um fræðslu

Fylltu út formið með upplýsingum um þig og við munum hafa samband við þig við fyrsta tækifæri.

Stjörnumerktar* línur er nauðsynlegt að fylla út.

Við höfum móttekið beiðnina!

Við notum vafrakökur

Við notum vafrakökur til að bæta upplifun þína á síðunni og safna upplýsingum til að bæta efni síðunnar.