Coverstar er forrit fyrir stutt myndbönd á samfélagsmiðlum sem lýsir sér sem barnvænt val við TikTok, en það hefur nokkrar áhættusama eiginleika. Notendur geta búið til og deilt stuttmyndböndum og flett í gegnum straum af myndböndum sem aðrir hafa búið til. Aðalsíðan inniheldur flipann ,,valinn“ og flipann ,,fylgjast með“ sem sýnir myndbönd frá þeim sem þú getur fylgst með. Notendur geta gefið myndböndum stjörnur (líkað), skrifað athugasemdir og svarað athugasemdum. Það er engin bein skilaboða möguleikar á Coverstar. Prófílar sýna heildarfjölda stjarna sem notandinn hefur fengið. Sumir notendur þar á meðal mjög ung börn gætu verið ,,staðfest“ (verified) og þá getur notandinn streymt myndbönd beint. Mörg myndbönd á Coverstar sýna börn að dansa eða syngja. Foreldrar ættu að vera meðvitaðir um að eins og á öllum opinberum vettvangi geta myndbönd sést af fólki á mismunandi aldri og að fólk getur villa til um aldur.