Omegle
YouTube Kids

Youtube Kids er útgáfa af myndbandsveitunni YouTube sem er sérstaklega hönnuð fyrir börn. Miðillinn býður upp á valið myndefni, einfaldara viðmót og aukið foreldraeftirlit, með það að markmiði að gera upplifun barna öruggari.
Clash Royale
Life360

WhatsApp er skilaboðaforrit í eigu Meta. Með því er hægt að vera í samskiptum í gegnum einkaskilboð, hópspjöll, radd- og myndsímtöl.
Telegram

Telegram er samfélagsmiðill og samskiptaforrit. Þar er hægt að eiga samskipti með einkaskilaboðum, í hópum og á opnum rásum (e. channels). Telegram leggur áherslu á hröð samskipti, stóra hópa og einfalda deilingu efnis. Minna eftirlit er með samskiptum inni á Telegram en á öðrum samskiptaforritum.
YouTube

Youtube er myndbandsveita þar sem notendur geta horft á, deilt og hlaðið upp myndböndum. Efnið spannar allt frá afþreyingu og tónlist yfir í kennsluefni og vídjóblogg (e. vlogs). Youtube er sá samfélagsmiðill sem er hvað mest notaður af börnum og ungmennum á Íslandi.
Character.ai
X

X (áður Twitter) er samfélagsmiðill sem byggir á stuttum textafærslum, myndum og myndböndum sem dreifast hratt í opnum straumi. Miðillinn er mikið notaður til umræðu um fréttir, stjórnmál og samfélagsmál. Miðillinn hefur breyst töluvert á undanförnum árum og hefur verið lögð áhersla á málfrelsi á miðlinum. Það hefur aukið magnið af fölsku og óviðeigandi efni.