Vantar þig aðstoð?

1717 hjálparsími

112 í neyð

Fræðsluefni

YouTube

Youtube er myndbandsveita þar sem notendur geta horft á, deilt og hlaðið upp myndböndum. Efnið spannar allt frá afþreyingu og tónlist yfir í kennsluefni og vídjóblogg (e. vlogs). Youtube er sá samfélagsmiðill sem er hvað mest notaður af börnum og ungmennum á Íslandi.

Aldurstakmark:

13+

Hlutfall notenda á aldrinum 14-16 ára á Íslandi: 84%

Hlutfall notenda á aldrinum 10-13 ára á Íslandi: 78%

*Börn þurfa að hafa náð 13 ára aldri til að geta stofnað sinn eigin notendaaðang á YouTube. Notendur undir 16 ára aldri mega ekki streyma efni í beinni útsendingu (e. live stream) nema foreldrar þeirra séu viðstaddir og sýnilegir í streyminu. Sumt efni á miðlinum er svo einungis aðgengilegt notendum sem eru 18 ára og eldri.

  • Samfélagsmiðill sem byggist á myndböndum af öllu mögulegu
  • Virkur algóritmi stýrir hvaða myndbönd hver og einn notandi fær á sína „Heimasíðu“ (e. Homepage) og á YouTube Shorts
  • Youtube Shorts byggir á sömu hönnun og TikTok – stutt myndbönd sem spilast hvort að öðru og getur orðið ávanabindandi að skruna í gegnum
  • Stór hluti efnis á YouTube er hægt að nálgast án aðgangs – mikilvægt er að muna að YouTube er ekki hannað fyrir börn þrátt fyrir að vera afar vinsæll meðal barna
  • YouTube er vinsælasti samfélagsmiðill á meðal barna á Íslandi

3 staðreyndir um YouTube

Hægt er að nota YouTube án þess að vera með notendaaðgang

Ekki þarf að stofna sérstakan notendaaðgang til að geta notað YouTube. Án notendaaðgangs er þó ekki hægt að skrifa athugasemdir, líka við efni, gerast áskrifandi eða hlaða upp eigin efni.

Algóritminn stýrir því hvaða myndband birtist næst

YouTube mælir stöðugt með nýjum myndböndum út frá því sem notandinn hefur horft á áður, óháð því hvort notandinn hafi stofnað séraðgang eða ekki. Þetta getur leitt börn hratt frá saklausu efni yfir í efni sem getur verið óviðeigandi og jafnvel skaðlegt, sérstaklega ef kveikt er á sjálfvirkri spilun.

Youtube er líka samskiptamiðill

Hægt er að eiga samskipti í gegnum athugasemdakerfi YouTube, spjallrásir tengdum beinum útsendingum (e. live chat) og samfélagsfærslur sem birtar eru á YouTube Community. Þannig geta börn og ungmenni auðveldlega orðið fyrir einelti eða áreitni á miðlinum, jafnvel þótt þau birti ekki neitt efni þar sjálf.

Önnur verkfæri

Viltu láta fjarlægja nektarmynd af barni undir 18 ára aldri á netinu?

Hér getur þú fengið aðstoð við að fjarlægja myndir sem sýna nekt eða kynferðislegar/klámfengnar myndir og myndbönd á netinu sem teknar voru fyrir 18 ára aldur. Það er von og hér getur þú fengið hjálp Stöndum saman að vernd barna á netinu

Vilt þú fá nýjustu fréttir og fræðsluefni?

Fylltu út formið með upplýsingum um þig og við munum hafa samband við þig við fyrsta tækifæri.

Fyrirspurn um fræðslu

Fylltu út formið með upplýsingum um þig og við munum hafa samband við þig við fyrsta tækifæri.

Stjörnumerktar* línur er nauðsynlegt að fylla út.

Við höfum móttekið beiðnina!

Villa kom upp! Vinsamlegast reyndu aftur. 

Við notum vafrakökur

Við notum vafrakökur til að bæta upplifun þína á síðunni og safna upplýsingum til að bæta efni síðunnar.