Vantar þig aðstoð?

1717 hjálparsími

112 í neyð

Fræðsluefni

Discord

Discord er samskiptaforrit sem byggir á texta-, radd- og myndspjalli innan svokallaðra þjóna (e. servers). Upphaflega voru það helst tölvuleikjaspilarar sem notuðu Discord en í dag eru notendur mun fjölbreyttari hópur fólks.

Aldurstakmark:

13+

Hlutfall notenda á aldrinum 14-16 ára á Íslandi: 33%

Hlutfall notenda á aldrinum 10-13 ára á Íslandi: 11%

  • Samskiptamiðill sem er vinsæll meðal einstaklinga sem spila tölvuleiki saman eða hópaspjöll vina
  • Hægt er að eiga samskipti í einstaklingsspjöllum, hópspjöllum, radd- og myndsímtölum
  • Spjallsvæðin eru kölluð „servers“ og geta innihaldið allt frá tveimur notendum upp í mörg þúsund
  • Spjallsvæðin geta bæði verið lokuð (e. private) eða opin (e.public)
  • Notendur spjallsvæðana setja reglur þeirra sjálfir og því eru mismunandi hópar með mismunandi reglur – þ.a.l. eru dæmi um spjallsvæði á Discord sem eru ekki við hæfi barna

3 staðreyndir um Discord

Samskipti fara fram í lokuðum rásum

Undir hverjum og einum þjóni er að finna fjölda mismunandi lokaðra rása (e. channels) þar sem samskipti eiga sér stað. Foreldrar geta ekki séð þessi samskipti nema barn þeirra sýni þeim þau sérstaklega. Einelti og áreitni getur auðveldlega þrifist í lokuðum rásum.

Stjórnendur og reglur mismunandi milli þjóna

Hver þjónn á Discord hefur sína eigin stjórnendur (e. moderators) og reglur. Sumum þjónum er vel stýrt en lítið sem ekkert eftirlit getur verið með öðrum þjónum sem eykur líkur á að skaðlegt efni fái að standa þar óáreitt.

Öryggisstillingar ekki endilega sjálfkrafa stilltar

Á Discord geta notendur fengið einkaskilaboð frá fólki á sama þjóni, jafnvel þótt þeir þekki það ekki ásamt því að rekast á óviðeigandi efni á miðlinum. Hægt er að stilla hvort við sjáum efni sem hefur verið merkt óviðeigandi og það hver getur sent okkur einkaskilaboð (e. DMs) undir Content & Social í stillingum appsins. Stillingarnar eru ekki endilega stilltar sjálfkrafa á þegar aðgangur er stofnaður.

Önnur verkfæri

Viltu láta fjarlægja nektarmynd af barni undir 18 ára aldri á netinu?

Hér getur þú fengið aðstoð við að fjarlægja myndir sem sýna nekt eða kynferðislegar/klámfengnar myndir og myndbönd á netinu sem teknar voru fyrir 18 ára aldur. Það er von og hér getur þú fengið hjálp Stöndum saman að vernd barna á netinu

Vilt þú fá nýjustu fréttir og fræðsluefni?

Fylltu út formið með upplýsingum um þig og við munum hafa samband við þig við fyrsta tækifæri.

Fyrirspurn um fræðslu

Fylltu út formið með upplýsingum um þig og við munum hafa samband við þig við fyrsta tækifæri.

Stjörnumerktar* línur er nauðsynlegt að fylla út.

Við höfum móttekið beiðnina!

Villa kom upp! Vinsamlegast reyndu aftur. 

Við notum vafrakökur

Við notum vafrakökur til að bæta upplifun þína á síðunni og safna upplýsingum til að bæta efni síðunnar.