Vantar þig aðstoð?

1717 hjálparsími

112 í neyð

Fræðsluefni

Instagram

Instagram er samfélagsmiðill í eigu Meta sem byggir fyrst og fremst á myndum og myndböndum. Notendur geta deilt efni í „feed“, „stories“ og „reels“, sent skilaboð og fylgt öðrum notendum.

Aldurstakmark:

13+

Hlutfall notenda á aldrinum 14-16 ára á Íslandi: 66%

Hlutfall notenda á aldrinum 10-13 ára á Íslandi: 6%

  • Samfélagsmiðill sem byggist á myndum og myndböndum
  • Á miðlinum er hægt að birta færslur (e. posts), sögur (e. stories) og spjallað saman í einka- og hópskilaboðum
  • Instagram býður einnig upp á Reels, sem eru stutt myndbönd sem spilast hvert af öðru á sama hátt og á TikTok
  • Virkur algóritmi stýrir hvaða myndbönd eða Reels hver og einn notandi fær á sína „Reels-síðu“ (e. Reelspage) – Reels getur verið ávanabindandi og mikill tímaþjófur
  • Óraunhæfur samanburður, pressa um vinsældir og vond áhrif á sjálfsímynd barna hefur verið tengd við Instagram í gegnum tíðina – stór hluti efnis á Instagram snýst um útlit, lífstíl og vinsældir

3 staðreyndir um Instagram

Ýtir undir samanburð og getur haft neikvæð áhrif á sjálfsmynd

Instagram er mjög sjónrænn miðill þar sem áhersla er oft á útlit, lífsstíl og „fullkomnun“. Slíkt efni getur haft áhrif á sjálfsmynd, líðan og líkamsímynd barna og ungmenna, sérstaklega ef notkunin er mikil.

Býður upp á samskipti við ókunnuga

Hægt er að vera í samskiptum við ókunnuga í gegnum skilaboð, athugasemdakerfið og svör við „stories“. Jafnvel þótt um sé að ræða einkareikning geta notendur fengið beiðnir frá ókunnugum um að fá að fylgja þeim eða skilaboð nema ákveðnar öryggisstillingar séu virkjaðar sérstaklega.

Efnið hverfur – en ekki endilega fyrir fullt og allt

Þótt efni sem notendur birta í „stories“ hverfi eftir 24 klst. geta aðrir notendur tekið skjáskot af því áður en það hverfur og deilt því áfram, jafnvel án vitundar og samþykkis þess sem birti það.

Önnur verkfæri

Viltu láta fjarlægja nektarmynd af barni undir 18 ára aldri á netinu?

Hér getur þú fengið aðstoð við að fjarlægja myndir sem sýna nekt eða kynferðislegar/klámfengnar myndir og myndbönd á netinu sem teknar voru fyrir 18 ára aldur. Það er von og hér getur þú fengið hjálp Stöndum saman að vernd barna á netinu

Vilt þú fá nýjustu fréttir og fræðsluefni?

Fylltu út formið með upplýsingum um þig og við munum hafa samband við þig við fyrsta tækifæri.

Fyrirspurn um fræðslu

Fylltu út formið með upplýsingum um þig og við munum hafa samband við þig við fyrsta tækifæri.

Stjörnumerktar* línur er nauðsynlegt að fylla út.

Við höfum móttekið beiðnina!

Villa kom upp! Vinsamlegast reyndu aftur. 

Við notum vafrakökur

Við notum vafrakökur til að bæta upplifun þína á síðunni og safna upplýsingum til að bæta efni síðunnar.