Eftirlit á Kick er minna en á sambærilegum miðlum og er því töluvert af óviðeigandi efni þar að finna. Gróft orðalag, fjárhættuspil, áfengi og vímuefni og fleira. Eignarhald Kick er nátengt veðmála- og fjárhættuspilsvettvangnum Stake.com og er því töluvert um streymum af fólki að veðja eða auglýsingar um veðmál á Kick.
Aldurstakmark:
13+
Kick er beinn streymisvettvangur líkt og Twitch
Notendur eru í beinu streymi og gera alls kyns hluti, spila tölvuleiki, fara út á lífið, eða einfaldlega eiga í samtali við áhorfendur
Hægt er að heita fjárhæðum á þá sem eru að streyma
Eftirlit er minna á Kick en öðrum streymisvettvöngum líkt og Twitch og þangað leita því oft notendur sem hafa verið bannaðir á öðrum miðlum
Þar sem efnið er í beinni er því er ekki hægt að sía frá óviðeigandi eða skaðlegt efni fyrirfram
3 staðreyndir um Kick
Spjall í beinni
3 staðreyndir um Kick
Það er ekki bara útsendingin sjálf sem er í beinni á Kick heldur einnig spjallborð. Þar geta áhorfendur skrifað inn athugasemdir sem aðrir sem eru að horfa sjá og sá sem er að streyma. Þar sem þetta spjall er líka í beinni er lítið eftirlit með því og gæta notendur látið ýmislegt flakka.
Keppni um athygli
Á beinum streymisvettvöngum líkt og Kick s´kjast notendur ekki aðeins eftir áhorfi á beinu útsendingar sínar heldur einnig á svokallaðar klippur (e. Clips). Þessar klippur eru lítil brot sem klippt eru úr löngum útsendingum og dreift á samfélagsmiðlum. Markmiðið er oft að gera eitthvað í beinu streymi sem býr til klippu sem væri líkleg til þess að fara á flug um samfélagsmiðla. Notendur eiga það því til að gera eitthvað vafasamt, umdeilt, hættulegt, fyndið eða sjokkarandi til þess að búa til þessar klippur. Í slíku umhverfi er keppst um athygli og að ganga lengra út á nöfina.
Umræður sem ekki eru við hæfi barna
Stærstur hluti streymenda á Kick eru fullorðnir og fjalla því um og sýna frá efni sem ekki er fyrir börn. Til dæmis fjárhættuspilum, djamminu, kynferðislegum viðfangsefnum o.s.frv.
Önnur verkfæri
Viltu láta fjarlægja nektarmynd af barni undir 18 ára aldri á netinu?
Hér getur þú fengið aðstoð við að fjarlægja myndir sem sýna nekt eða kynferðislegar/klámfengnar myndir og myndbönd á netinu sem teknar voru fyrir 18 ára aldur. Það er von og hér getur þú fengið hjálpStöndum saman að vernd barna á netinu
Vilt þú fá nýjustu fréttir og fræðsluefni?
Fylltu út formið með upplýsingum um þig og við munum hafa samband við þig við fyrsta tækifæri.
Fyrirspurn um fræðslu
Fylltu út formið með upplýsingum um þig og við munum hafa samband við þig við fyrsta tækifæri.
Stjörnumerktar* línur er nauðsynlegt að fylla út.
Við notum vafrakökur
Við notum vafrakökur til að bæta upplifun þína á síðunni og safna upplýsingum til að bæta efni síðunnar.