Fortnite er vinsæll tölvuleikur sem snýst um að útrýma öðrum leikmönnum með hinum ýmsu vopnum og vera síðasti eftirlifandi leikmaðurinn á eyðieyju. Leikurinn er þekktur fyrir litríka grafík, mikinn hraða, stöðugar uppfærslur og samskipti við aðra leikmenn.
Aldurstakmark:
13+
Ókeypis tölvuleikur þar sem 100 spilarar keppast um að vera sá síðasti eftir á lífi
Spilarar safna vopnum og öðrum hjálpartækjum til beita gegn öðrum leikmönnum til þess að lifa lengur af
Hægt er að spila einn eða í liði með öðrum og eiga þ.a.l. samskipti við aðra spilara
Þrátt fyrir að leikurinn sjálfur er frír er hægt kaupa allskyns aukahluti leiknum á borð við búninga á karakterinn þinn (e.skins)
Slíkt kostar V-Bucks, sem er gjaldmiðill leiksins – Hægt er að kaupa V-Bucks fyrir alvöru pening
3 staðreyndir um Fortnite
Netleikur
Fortnite er netleikur. Leikmenn spila með og gegn öðrum leikmönnum í rauntíma. Þetta gerir það að verkum að yfirleitt er ekki hægt að setja leikinn á pásu eftir að hann er byrjaður. Þá er einnig hægt að eiga í samskiptum við aðra leikmenn í gegnum leikinn, t.d. með raddsamtölum (e. voicechat).
Margar útgáfur í boði
Langvinsælasta útgáfan af Fortnite heitir Battle Royal. Þar lenda 100 leikmenn á eyðieyju og keppast um að útrýma hvorum öðru og lifa sem lengst. Þá eru aðrar útgáfur í boði í Fortnite. Í annari útgáfu vinna leikmenn saman að því að útrýma skrímslum, ein útgáfa býður leikmönnum upp á að skapa sýna eigin heima og leiki. Svo er LEGO-útgáfa, kappakstursútgáfa og margt fleira.
Vörur til sölu fyrir alvöru pening í leiknum
Leikurinn sjálfur er ókeypis en stór hluti af Fortnite eru aukahlutirnir sem hægt er að vinna sér inn og/eða kaupa. Dæmi um þetta er útlit á persónunum (e. skins). Reglulega koma nýjar útlits uppfærslur sem leikmenn geta keypt og eða eignast með virkri spilun.
Önnur verkfæri
Viltu láta fjarlægja nektarmynd af barni undir 18 ára aldri á netinu?
Hér getur þú fengið aðstoð við að fjarlægja myndir sem sýna nekt eða kynferðislegar/klámfengnar myndir og myndbönd á netinu sem teknar voru fyrir 18 ára aldur. Það er von og hér getur þú fengið hjálpStöndum saman að vernd barna á netinu
Vilt þú fá nýjustu fréttir og fræðsluefni?
Fylltu út formið með upplýsingum um þig og við munum hafa samband við þig við fyrsta tækifæri.
Fyrirspurn um fræðslu
Fylltu út formið með upplýsingum um þig og við munum hafa samband við þig við fyrsta tækifæri.
Stjörnumerktar* línur er nauðsynlegt að fylla út.
Við notum vafrakökur
Við notum vafrakökur til að bæta upplifun þína á síðunni og safna upplýsingum til að bæta efni síðunnar.