Aukinn kraftur í fræðslu um félagslegt netöryggi á Íslandi
Logi Einarsson, menningar- nýsköpunar- og háskólaráðherra og Elfa Ýr Gylfadóttir, framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar, undirrituðu í dag samstarfssamning um rekstur Netvís – Netöryggismiðstöðvar Íslands til þriggja ára. Samningurinn tengist aðgerðum í aðgerðaáætlun stjórnvalda í gervigreind og aðgerðaáætlun um málefni fjölmiðla.
Netvís – Netöryggismiðstöð Íslands heyrir undir Fjölmiðlanefnd og fer með samhæfingarhlutverk íslenskra samstarfsaðila á sviði netöryggis- og velferðarmála barna og ungmenna. Netvís hlaut nýlega vilyrði fyrir 55 millj. kr. árlegum styrk frá Evrópusambandinu, til þriggja ára, vegna þátttöku Íslands í verkefninu Safer Internet Centre. Verkefnið miðar að því að efla örugga, ábyrga og jákvæða netnotkun barna og ungmenna á Íslandi og styrkja viðbragðskerfi vegna skaðlegrar eða ólögmætrar netsamskiptahegðunar. Verkefnastyrkirnir eru fjármagnaðir af styrkjaáætlun Evrópusambandsins Digital Europe Programme (DIGITAL-2025-BESTUSE-08) sem styrkir sambærileg verkefni í öðrum Evrópulöndum. Forsenda þess að styrkur fáist er að aðildarríki fjármagni 50% af heildarkostnaði verkefnis. Verkefnið er nú þegar fjármagnað að hluta á fjárlögum og 20 milljón króna viðbótarframlag á ári tryggir því fulla þátttöku Íslands í evrópsku samstarfi um netöryggi og vernd barna á netinu.
Með þessum stuðningi verður Netvís kleift að setja aukinn kraft í fræðsluverkefni sem efla munu upplýsinga- og miðlalæsi og netöryggi barna og ungmenna um allt land. Hlutverk Netvís er jafnframt að stuðla að vitundarvakningu meðal almennings og miðla fræðslu til allra aldurshópa um upplýsinga- og miðlalæsi. Með stuðningi stjórnvalda er sérstaklega horft til þess að:
Efla alþjóðlegt samstarf og sýnileika Íslands innan ESB og EES í netöryggismálum barna og ungmenna.
Tryggja fulla þátttöku Íslands í evrópsku netöryggis- og barnaverndarstarfi á netinu.
Auka getu Netvís og samstarfsaðila til að fylgjast með þróun, veita stuðning, fræðslu og viðbrögð við nýjum áskorunum í stafrænu umhverfi barna, m.a. vegna örrar þróunar á sviði gervigreindar.
Styrkja forvarnarstarf gegn neteinelti, kynferðisofbeldi og kynferðislegri áreitni, skaðlegu efni og mögulegum neikvæðum áhrifum gervigreindar á geðheilsu.
Stuðla að innlendri stefnumótun og menntun í stafrænni borgaravitund.
Leiða fræðslu um gervigreindarlæsi og áhrif gervigreindar á lýðræðismenningu um allt land.
Efla alþjóðlegt samstarf og sýnileika Íslands innan ESB og EES í netöryggismálum barna og ungmenna.
Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, Elfa Ýr Gylfadóttir fráfarandi framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar og Skúli Bragi Geirdal, sviðsstjóri Netvís – Netöryggismiðstöðvar Íslands við undirritun samningsins.