Vantar þig aðstoð?

1717 hjálparsími

112 í neyð

Fræðsluefni

WhatsApp

Aldurstakmark:

13++

Hlutfall notenda á aldrinum 14-16 ára á Íslandi: 34%

Hlutfall notenda á aldrinum 10-13 ára á Íslandi: 47%

  • Samskiptamiðill sem er svipaður og Messenger en byggir á símanúmerum en ekki samfélagsmiðlareikningum
  • Hægt er að senda texta- og raddskilaboð, myndir, myndbönd, radd- og myndsímtöl
  • Miðillinn verður sífellt vinsælli meðal barna og ungmenna á Íslandi og eru dæmi um að hópspjöll bekkja og íþróttaliða fari fram á WhatsApp
  • Hver sem er getur sent þér skilaboð eða bætt þér í hópa á WhatsApp ef hann er með símanúmerið þitt – hægt er að stilla svo aðeins tengiliðir geti bætt þér í hóp

3 staðreyndir um WhatsApp

Býður upp á samskipti við ókunnuga

Ólíkt Messenger þá er WhatsApp tengt símanúmerum notenda. Þetta þýðir að hver sá sem er með símanúmer notandans getur haft samband við hann í gegnum forritið, nema öryggisstillingar takmarki það.

Skilaboð í WhatsApp eru dulkóðuð

WhatsApp dulkóðar einkaskilaboð sem þýðir að einungis sendandi og mótttakandi geta lesið skilaboðin. Dulkóðunin eykur friðhelgi einkalífs notenda, en takmarkar jafnframt möguleika foreldra til að fylgjast með samskiptum barna sinna í forritinu.

WhatsApp halar sjálfkrafa niður efni sem notandi fær sent

Þetta þýðir að börn geta fengið í hendurnar mikið magn efnis á skömmum tíma sem appið hleður sjálfkrafa niður. Slíkt niðurhal getur kostað farsímagögn (e. Mobile data) og getur efnið verið óviðeigandi eða jafnvel skaðlegt. Hægt er að koma í veg fyrir þetta með því að breyta niðurhals- og geymslustillingum (e.Storage and data settings)

Önnur verkfæri

Vilt þú fá nýjustu fréttir og fræðsluefni?

Fylltu út formið með upplýsingum um þig og við munum hafa samband við þig við fyrsta tækifæri.

Fyrirspurn um fræðslu

Fylltu út formið með upplýsingum um þig og við munum hafa samband við þig við fyrsta tækifæri.

Stjörnumerktar* línur er nauðsynlegt að fylla út.

Við höfum móttekið beiðnina!

Viltu láta fjarlægja nektarmynd af barni undir 18 ára aldri á netinu?

Hér getur þú fengið aðstoð við að fjarlægja myndir sem sýna nekt eða kynferðislegar/klámfengnar myndir og myndbönd á netinu sem teknar voru fyrir 18 ára aldur. Það er von og hér getur þú fengið hjálp Stöndum saman að vernd barna á netinu

Við notum vafrakökur

Við notum vafrakökur til að bæta upplifun þína á síðunni og safna upplýsingum til að bæta efni síðunnar.