Vantar þig aðstoð?

1717 hjálparsími

112 í neyð

Fræðsluefni

Twitch

Twitch er gagnvirk streymisveita þar sem notendur geta horft á og streymt (e. stream) efni í beinni útsendingu ásamt því að eiga í samskiptum við aðra notendur. Á Twitch er helst verið að streyma tölvuleikjum en einnig skapandi efni á borð við tónlist.

Aldurstakmark:

13+

Hlutfall notenda á aldrinum 14-16 ára á Íslandi: 17%

Hlutfall notenda á aldrinum 10-13 ára á Íslandi: 5%

  • Svipað og Youtube nema myndböndin eru í beinu streymi
  • Stór partur af Twitch er spjallið sem er í gangi á meðan streymið lifir – þar spjalla þeir saman sem eru að horfa á streymið
  • Streymendur (e. streamers) eru oftast fullorðið fólk og efnið oft eftir því
  • Hægt er að heita fjárhæðum á þá sem eru að streyma
  • Einkaspjöll og skilaboð eru einnig í boði á Twitch

3 staðreyndir um Twitch

Auðvelt að rekast á óviðeigandi efni

Þrátt fyrir að ið á Twitch sé 13+ er mikið af efni á miðlinum ætlað eldri ungmennum eða fullorðnum, bæði hvað varðar orðfæri, húmor og umræðuefni. Börn geta því auðveldlega rekist á efni sem hæfir ekki aldri þeirra, sérstaklega í beinum útsendingum.

Hægt að eiga bein samskipti í rauntíma

Stór hluti af Twitch-upplifuninni er spjallið en þar er geta notendur átt bein samskipti við þann sem streymir og það í rauntíma. Samskiptin sem eiga sér stað í spjallinu geta verið mjög hröð og eftirlitið með þeim lítið, sérstaklega á minni rásum.

Gjafir og áskriftir geta falið í sér kostnað

Notendur geta gerst áskrifendur að ákveðnum rásum, keypt stafræna mynt og sent streymurum einskonar gjafir (e. gifts). Þetta getur leitt til óvænts kostnaðar ef ekki er farið sérstaklega yfir greiðslu- og reikningsstillingar.

Önnur verkfæri

Vilt þú fá nýjustu fréttir og fræðsluefni?

Fylltu út formið með upplýsingum um þig og við munum hafa samband við þig við fyrsta tækifæri.

Fyrirspurn um fræðslu

Fylltu út formið með upplýsingum um þig og við munum hafa samband við þig við fyrsta tækifæri.

Stjörnumerktar* línur er nauðsynlegt að fylla út.

Við höfum móttekið beiðnina!

Viltu láta fjarlægja nektarmynd af barni undir 18 ára aldri á netinu?

Hér getur þú fengið aðstoð við að fjarlægja myndir sem sýna nekt eða kynferðislegar/klámfengnar myndir og myndbönd á netinu sem teknar voru fyrir 18 ára aldur. Það er von og hér getur þú fengið hjálp Stöndum saman að vernd barna á netinu

Við notum vafrakökur

Við notum vafrakökur til að bæta upplifun þína á síðunni og safna upplýsingum til að bæta efni síðunnar.