Vantar þig aðstoð?

1717 hjálparsími

112 í neyð

Fræðsluefni

Snapchat

Snapchat er samfélagsmiðill þar sem notendur geta sent hvorum öðrum skilaboð eða „snöpp“ í formi texta eða hljóðs, myndir og myndbönd sem hverfa yfirleitt eftir að hafa verið skoðuð. Forritið er einkum notað til hversdagslegra samskipta milli vina en notendur þess geta einnig deilt efni í gegnum sögu (e. story). Forritið bíður upp á mismunandi leiðir til að breyta myndefni, svosem með síum (e. filters) eða límmiðum (e. stickers).

Aldurstakmark:

13+

Hlutfall notenda á aldrinum 14-16 ára á Íslandi: 84%

Hlutfall notenda á aldrinum 10-13 ára á Íslandi: 24%

  • Samskiptamiðill þar sem samtölin hverfa samtímis
  • Hægt er að senda texta- og raddskilaboð, myndir, myndbönd, radd- og myndsímtöl.
  • Eiginleikar eins og „streaks“ hvetja undir daglega notkun
  • Það að samskipti hverfi getur ýtt undir áreitni og leynileg samtöl
  • Staðsetningareiginleikar (Snapmap) geta gefið upp staðsetningu notandans

3 staðreyndir um Snapchat

Efnið hverfur – en ekki endilega fyrir fullt og allt

Þótt efni sem er sent yfir eða birt á Snapchat hverfi sjálkrafa geta móttakendur tekið skjáskot af efninu eða tekið myndband af skjánum þegar efnið er skoðað. Notendur fá tilkynningu um það frá Snapchat þegar mótttakandi tekur skjáskot af efni frá þeim en það kemur ekki í veg fyrir að efnið sé vistað.

Mögulegt að sjá staðsetningu notenda í rauntíma

Með Snap Map geta notendur deilt staðsetningu sinni með vinum sínum í rauntíma. Hjá sumum notendum er sjálfgefið kveikt á þessu og því mikilvægt að foreldrar viti hvernig á að slökkva á eða stilla hverjir geta séð staðsetningu barnsins.

Býður upp á samskipti við ókunnuga

Ungir notendur geta fengið skilaboð á Snapchat frá fólki sem það þekkir ekki, sérstaklega ef stillingar leyfa víðtæk samskipti eða ef notendanafni er deilt áfram. Mikilvægt er að fara yfir persónuverndar- og samskiptastillingar reglulega.

Önnur verkfæri

Vilt þú fá nýjustu fréttir og fræðsluefni?

Fylltu út formið með upplýsingum um þig og við munum hafa samband við þig við fyrsta tækifæri.

Fyrirspurn um fræðslu

Fylltu út formið með upplýsingum um þig og við munum hafa samband við þig við fyrsta tækifæri.

Stjörnumerktar* línur er nauðsynlegt að fylla út.

Við höfum móttekið beiðnina!

Viltu láta fjarlægja nektarmynd af barni undir 18 ára aldri á netinu?

Hér getur þú fengið aðstoð við að fjarlægja myndir sem sýna nekt eða kynferðislegar/klámfengnar myndir og myndbönd á netinu sem teknar voru fyrir 18 ára aldur. Það er von og hér getur þú fengið hjálp Stöndum saman að vernd barna á netinu

Við notum vafrakökur

Við notum vafrakökur til að bæta upplifun þína á síðunni og safna upplýsingum til að bæta efni síðunnar.