Vantar þig aðstoð?

1717 hjálparsími

112 í neyð

Fræðsluefni

Minecraft

Minecraft er vinsæll tölvuleikur sem snýst um að búa til alls konar hluti úr efnivið sem leikmenn geta fundið í umhverfi sínu. Leikurinn býður upp á tvennskonar útgáfur (e. gamemodes). Í Creative Mode geta leikmenn byggt hluti án allra takmarkana en í Survival Mode reyna leikmenn að sjá fyrir sjálfum sér og lifa af í veröldinni, með því að safna efni og búa til hluti og verja sig frá ýmsum hættum sem kunna að leynast í veröldinni. Minecraft er stundum líkt við Lego á netinu en nánast allt í leiknum er gert úr kubbum.

Aldurstakmark:

7+

  • Vinsæll tölvuleikur þar sem leikmenn kanna, safna efnivið úr umhverfinu og byggja allt mögulegt.
  • Leikurinn býður upp á tvennskonar útgáfur (e. gamemodes). Annars vegar Creative og hins vegar Survival.
  • Minecraft leggur miklar áherslu á sköpun, ímyndurnarafl, samvinnu og lausn vandamála.
  • Bæði er hægt að spila leikinn einn eða með öðrum og er þá hægt að eiga í samskiptum við þann sem spilað er með.
  • Hægt er að kaupa nýtt útlit (e.skins) á karakterinn sinn, stærri útgáfu af heiminum og fleira fyrir alvöru pening, en slíkt er ekki nauðsynlegt til að spila leikinn.

3 staðreyndir um Minecraft

Bæði leikur og félagslegt rými

Vinsælt er að spila Minecraft með öðrum og vinna saman að því að byggja upp sitt umhverfi og lifa af í veröldinni. Vinir spila því oft saman og nýta leikinn einnig til samveru og samskipta. Það er því mikilvægt að muna að hægt er að eiga samskipti í gegnum leikinn.

Getur nýst til lærdóms og sköpunar

Minecraft leggur mikið upp úr því að leikurinn sé fræðandi. Framleiðandinn bendir á að leikurinn ýti undir sköpun og ímyndunarafl ásamt því að þjálfa upp samvinnu og úrlausn vandamála. Þá er til sérstök skólaútgáfa af leiknum sem heitir Minecraft: Education Edition.

Enginn endir

Minecraft er opinn sandkassaleikur og þar er hægt að byggja og skapa nánast hvað sem er. Þetta þýðir líka að leikurinn klárast í raun ekki og það er sett í hendur leikmannsins að ákveða hvenær skal hætta. Þá ber að nefna að skrímsli og illmenni í Minecraft á borð við uppvakninga og beinagrindur gætu vakið upp óhug hjá einhverjum

Önnur verkfæri

Vilt þú fá nýjustu fréttir og fræðsluefni?

Fylltu út formið með upplýsingum um þig og við munum hafa samband við þig við fyrsta tækifæri.

Fyrirspurn um fræðslu

Fylltu út formið með upplýsingum um þig og við munum hafa samband við þig við fyrsta tækifæri.

Stjörnumerktar* línur er nauðsynlegt að fylla út.

Við höfum móttekið beiðnina!

Viltu láta fjarlægja nektarmynd af barni undir 18 ára aldri á netinu?

Hér getur þú fengið aðstoð við að fjarlægja myndir sem sýna nekt eða kynferðislegar/klámfengnar myndir og myndbönd á netinu sem teknar voru fyrir 18 ára aldur. Það er von og hér getur þú fengið hjálp Stöndum saman að vernd barna á netinu

Við notum vafrakökur

Við notum vafrakökur til að bæta upplifun þína á síðunni og safna upplýsingum til að bæta efni síðunnar.