Vantar þig aðstoð?

1717 hjálparsími

112 í neyð

Guðrún Kristín Kristinsdóttir

Guðrún Kristín Kristinsdóttir, er með BA próf í mannfræði og hefur lokið MA gráðu í Intercultural Encounters frá háskólanum í Helsinki. Hún hefur mikla reynslu af því að starfa með börnum og ungmennum, hefur starfað sem frístundafulltrúi, hefur undirbúið Gettu betur keppnislið og stuttlega starfað sem stundakennari í framhaldsskóla. Þá hefur hún unnið að gerð fræðslu- og kynningarefnis.

Stefanía Ragnarsdóttir

Stefanía Ragnarsdóttir, hefur lokið BA prófi í þverfaglegum félagsvísindum frá háskólanum í Amsterdam. Hún er að ljúka MA prófi í Political Communication frá sama skóla í maí. Hún hefur unnið og starfað með ungu fólki í grasrótarstarfi og unnið að kynningar- og fræðsluefni fyrir erlend félagasamtök.

Kristín Ómarsdóttir

Kristín Ómarsdóttir hefur lokið BA gráðu í tómstunda- og félagsmálafræði frá Háskóla Íslands. Þá hefur hún lokið MPH gráðu í lýðheilsuvísindum frá Háskólanum í Lundi. Auk þess hefur Kristín lokið viðbótardiplóma í Farsæld barna frá Háskóla Íslands. Kristín hefur mikla reynslu af starfi með börnum og ungmennum. Hún starfaði sem íslenskukennari, hefur haft yfirumsjón með frístundaheimili og félagsmiðstöð […]

Haukur Brynjarsson

Haukur er fjölmiðlafræðingur að mennt og sérfræðingur á sviði upplýsinga- og miðlalæsis hjá Netvís – Netöryggismiðstöðvar Íslands. Haukur vinnur að fræðslu og rannsóknum sem efla þekkingu og vitund almennings um örugga þátttöku í stafrænu samfélagi, með áherslu á upplýsinga- og miðlalæsi, stafrænt öryggi og vernd viðkvæmra hópa. Haukur hefur reynslu af því að flytja forvarna- […]

Skúli Bragi Geirdal

Skúli Bragi Geirdal er reyndur fyrirlesari og sérfræðingur í miðlalæsi og félagslegu netöryggi. Hann er menntaður fjölmiðlafræðingur með fjölbreyttan bakgrunn m.a. í fjölmiðlum, knattspyrnuþjálfun og félagsstarfi ungmenna. Síðustu ár hefur hann ferðast um landið með fræðsluerindi fyrir börn, ungmenni, foreldra, kennara og eldri borgara við góðan orðstýr. Nokkur dæmi um vinnuhópa og stjórnir:

Vilt þú fá nýjustu fréttir og fræðsluefni?

Fylltu út formið með upplýsingum um þig og við munum hafa samband við þig við fyrsta tækifæri.

Fyrirspurn um fræðslu

Fylltu út formið með upplýsingum um þig og við munum hafa samband við þig við fyrsta tækifæri.

Stjörnumerktar* línur er nauðsynlegt að fylla út.

Við höfum móttekið beiðnina!

Villa kom upp! Vinsamlegast reyndu aftur. 

Við notum vafrakökur

Við notum vafrakökur til að bæta upplifun þína á síðunni og safna upplýsingum til að bæta efni síðunnar.