Guðrún Kristín Kristinsdóttir, er með BA próf í mannfræði og hefur lokið MA gráðu í Intercultural Encounters frá háskólanum í Helsinki. Hún hefur mikla reynslu af því að starfa með börnum og ungmennum, hefur starfað sem frístundafulltrúi, hefur undirbúið Gettu betur keppnislið og stuttlega starfað sem stundakennari í framhaldsskóla. Þá hefur hún unnið að gerð fræðslu- og kynningarefnis.