Eldra fólk
Verum örugg á netinu
Netið er stór hluti af daglegu lífi flestra. Þar eigum við samskipti, leitum upplýsinga og sinnum ýmsum erindum. En stundum getur verið erfitt að vita hverju er óhætt að treysta. Því er mikilvægt að þekkja hætturnar sem leynast gjarnan á netinu og kunna að bregðast við þeim.
Hér finnur þú hagnýtar upplýsingar og einföld skref sem geta hjálpað þér að:
Hættur á netinu
Þrátt fyrir að netið sé frábært á margan hátt geta þar einnig leynst hættur. Óprúttnir aðilar nýta sér líka tæknina til svika, þá gjarnan til að hafa af okkur pening eða persónuupplýsingar.
Oft birtast netsvik okkur sem hver önnur skilaboð eða tilkynningar á netinu og er það með vilja gert til að við föllum frekar fyrir svikunum.
Það er góð regla að deila aldrei kortanúmerum, símanúmerum, heilsufarsupplýsingum og lykilorðum með fólki sem við þekkjum ekki á netinu
Rauðu flöggin
Hvað eru rauð flögg á netinu? Þegar við erum á netinu, hvort sem við erum að skrolla á samfélagsmiðlum, svara skilaboðum eða tölvupóstum er mikilvægt að vera með á nótunum. Temjum okkur að hafa alltaf augun opin fyrir rauðum flöggum, einhverju sem okkur þykir vafasamt eða óeðlilegt. Ef við rekumst á rautt flagg skulum við staldra við og skoða viðfangsefnið vel áður en við bregðumst við. Með því að vera vakandi fyrir rauðu flöggunum getum við komið í veg fyrir að svikarar og aðrir óprúttnir aðilar hafi betur og takist að blekkja okkur.Er hlekkur í skilaboðunum og þér gefnar leiðbeiningar að fylgja honum?
Það er dæmi um rautt flagg. Hlekkurinn gæti leitt á greiðslusíðu þar sem þú ert beðinn um kortaupplýsingar eða símanúmer fyrir rafræn skilríki. Hlekkur í skilaboðum einn og sér þarf ekki að þýða að um svik sé að ræða en þá er gott að athuga hvort það séu fleiri rauð flögg í skilaboðunum.
Verum vakandi fyrir rauðum flöggum á netinu
Við getum varist netsvikum með því að vera upplýst um hvernig þau birtast okkur og á hvaða forsendum.
Eitt rautt flagg þarf ekki að þýða að um svik sé að ræða.
En séu mörg rauð flögg til staðar er best að staldra við og athuga málið.
Netsvik
Mikilvægt er að muna að netsvik snúast um að plata fólk. Við sjálf erum besta vörnin.Stundum reyna svikarar að ná til okkar með SMS skilaboðum þar sem okkur eru gefnar leiðbeiningar sem yfirleitt ganga út á að hafa af okkur persónuupplýsingar eða pening.
Skilaboðin geta virst vera frá fyrirtækjum, ríkisstofnunum eða einstaklingum. Oft geta þetta verið einstaklingar sem við þekkjum en einhver hefur tekið yfir aðganginn þeirra og sent okkur skilaboð í þeirra nafni.
Skilaboðin innihalda oft „áríðandi“ upplýsingar eða spurningar eða hlekki sem þér er bent á að fylgja.
Tilkynningargátt lögreglunnar
Tilkynntu til lögreglu ef peningum var stolið af þér á netinu, til dæmis af korti eða bankareikningi, með fölsuðum skilaboðum, á vefverslun, með fjárkúgun, ástarsvikum eða á annan hátt. Jafnvel þó þú hafir ekki tapað peningum er gott að senda ábendingu til lögreglunnar um tilraun til svika. Þú getur tilkynnt málið hér eða á næstu lögreglustöð.
Á vef lögreglunnar má finna fræðslu um ýmsar tegundir fjársvika eins og samskiptasvik, kortasvindl og fleira.
Tilkynna fjársvik til lögregluGátlistar fyrir rauð flögg
Fékkstu sendan hlekk? Það þýðir ekki endilega að um netsvik sé að ræða.Fékkstu skilaboð frá ókunnugum? Ekki heldur gefið að það sé svikahrappur. En ef ókunnugur aðili sendir þér hlekk, biður um kortaupplýsingar og segir þér að bregðast við hratt þá erum við komin með ríka ástæðu til að stoppa og kanna málið betur áður en við höldum áfram. Rauðu flöggin hjálpa okkur að meta áhættuna, ekki dæma út frá einu atriði.Ráð!: Förum sjálf inn í netvafra og sláum inn vefslóðinni sjálf
Svikarar lokka fólk til sín með einhverju sem virðist heillandi
Oft myndast náin tengsl og traust. Okkur eru hrósað og veitt mikil athygli.
Loforð um peninga eða verðlaun, t.d. að vinna í lottó eða vinna í gjafaleik.
Oftast er reynt að vekja upp tilfinningar sem fá okkur til að bregðast við eins og svikararnir vilja.
Hvað á ég að gera ef ég er búin/n að smella?“
1. Stöðvaðu samskiptin. Ekki senda fleiri upplýsingar, peninga eða staðfestingar. Ekki eyða samskiptunum því þau gætu verið sönnunargögn. 2. Tryggðu aðganginn. Hafðu samband við bankann ef greiðsluupplýsingar eða peningar koma við sögu. Skiptu um lykilorð ef þú hefur gefið það upp. Ef þú settir upp grunsamlegt forrit skaltu hætta að nota það og fáðu aðstoð við að yfirfara tækið. 3. Leitaðu aðstoðar. Tilkynntu svikin til viðeigandi aðila, varðveittu gögn og fáðu hjálp við að takmarka tjónið.Sími: 410 4000
Opnunartími: Alla daga kl. 9–23. Utan opnunartíma er neyðarþjónusta Visa-korta í síma 525 2000.
Netfang: svikavakt@landsbankinn.is
Neyðarlokun: Í appinu er hægt að loka öllum kortum, appi og netbanka í einu.
Sími: 440 4000
Opnunartími: Allan sólarhringinn vegna neyðartilfella.
Neyðarlokun: Í appinu er hægt að frysta kort og skrá út öll innskráð tæki.
Sími: 444 7000
Opnunartími: Virka daga kl. 9-16. Utan þess tíma er hægt að ná sambandi við neyðarþjónustu í síma 525 2000
Netfang: netsvik@arionbanki.is
Neyðarlokun: Í appinu er hægt að frysta kort.
Sími: 588 4636
Opnunartími: Virka daga kl. 9–16.
Netfang: hallo@indo.is
Neyðarlokun: Á vefnum indo.is/neydarlokun er hægt að frysta kort strax, bæði plastkort og stafrænt kort í síma.
Sími: 540 3200
Netfang: thjonusta@kvika.is
Neyðarlokun: Á vef Kviku getur þú framkvæmt neyðarlokun á kortinu þínu sem gerir það að verkum að ekki er hægt að framkvæma neinar færslur, hvort sem það er í posa, net eða hraðbanka.
Sparisjóður Austurlands
Sími: 470 1100 - Netfang: sparaust@sparaust.is
Sparisjóður Suður-Þingeyinga
Sími: 464 6200 - Netfang: spthin@spthin.is
Smári Sparisjóður
Sími: 460 9400 - Netfang: smari@smari.is
Fræðsluefni
Hér fyrir neðan er að finna fjölbreytt fræðsluefni.
Þema