Vantar þig aðstoð?

1717 hjálparsími

112 í neyð

Foreldrar

Nauðsynlegt er að foreldrar eigi reglulega samtal við börn sín um netið og leiðbeini þeim um hvernig nota megi það á öruggan og ábyrgan hátt.

Á tímum hraðra tæknibreytinga getur þetta samtal verið áskorun en mikilvægt er að foreldrar sýni áhuga og haldi sér vel upplýstum svo að þeir geti stutt við börn sín þegar á reynir. Börn og ungmenni þurfa að geta treyst því að þau geti leitað til foreldra sinna þegar þau lenda í vanda á netinu. Hér má finna fjölbreytt fræðsluefni til stuðnings við foreldra. 

Verkfærakista foreldra

Hér finnur þú samantekt á fræðsluefni um vinsæla samfélagsmiðla, fjölskyldustillingar, tilkynningaleiðir og öryggisstillingar. Þá er hér einnig að finna hlekki inn á annað gagnlegt efni til foreldra um netöryggi barna.

Verkfærakista – Tegund
Sýna fleiri verkfæri

Viltu láta fjarlægja nektarmynd af barni undir 18 ára aldri á netinu?

Hér getur þú fengið aðstoð við að fjarlægja myndir sem sýna nekt eða kynferðislegar/klámfengnar myndir og myndbönd á netinu sem teknar voru fyrir 18 ára aldur. Það er von og hér getur þú fengið hjálp Stöndum saman að vernd barna á netinu Take It Down

Fræðsluefni

Hér fyrir neðan er að finna fjölbreytt fræðsluefni til stuðnings við uppeldi.

Þema

Þema

Heilræði fyrir foreldra

1

Opnun á samtal sem byggir á trausti og virkri hlustun. Börn þurfa öruggan stað til að leita á. 

2

Það er eðlilegt að gera mistök og mistök eru til að læra af þeim.

3

Notum skjátæki, miðla og tölvuleiki líka sem samverustund og á uppbyggilegan hátt. 

4

Búum okkur til fjölskyldusáttmála þar sem börnin eru með í ferlinu.

5

Komum fram við aðra á netinu eins og við myndum gera úti á götu. Að tjá sig nafnlaust á netinu réttlætir ekki hatursfulla og skaðlega tjáningu. 

6

Nýtum öpp, öryggisstillingar og vefsíður til þess að gera umhverfi barna á netinu öruggara t.d. ókeypis lausnir eins og Family Sharing hjá Apple og Google Family Link.

7

Virðum friðhelgi annarra og deilum ekki efni í leyfisleysi sem gæti valdið öðrum skaða.

8

Verum góðar fyrirmyndir og hugum að því sjálf hvernig við notum skjátæki, netið og samfélagsmiðla.

9

Virðum aldurstakmörk í myndefnum, leikjum og á samfélagsmiðlum.

10

Lítum upp og hugum að fjölbreyttum samverustundum.

Vilt þú fá nýjustu fréttir og fræðsluefni?

Fylltu út formið með upplýsingum um þig og við munum hafa samband við þig við fyrsta tækifæri.

Fyrirspurn um fræðslu

Fylltu út formið með upplýsingum um þig og við munum hafa samband við þig við fyrsta tækifæri.

Stjörnumerktar* línur er nauðsynlegt að fylla út.

Við höfum móttekið beiðnina!

Villa kom upp! Vinsamlegast reyndu aftur. 

Við notum vafrakökur

Við notum vafrakökur til að bæta upplifun þína á síðunni og safna upplýsingum til að bæta efni síðunnar.