Netumferðarskólinn

Netumferðarskólinn er hluti af aðgerðaráætlun stjórnvalda í netöryggi og styrkt af Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu. Fræðsluerindið er blanda af fyrirlestri, hópverkefni og samtali við börnin þar sem áherslan er á vitundarvakningu, hugtakaskilning og valdeflingu. Fjölmiðlanefnd og Persónuvernd fengu það hlutverk að vinna fræðsluefni um upplýsinga-, miðla- og tæknilæsiásamt því að auka þekkingu á persónuvernd í meðferð upplýsinga fyrir 4.-7. […]
Algóritminn sem elur mig upp

Hvers virði eru upplýsingarnar um okkur og hvað greiðum við fyrir aðgang okkar að samfélagsmiðlum? Í erindinu er áhersla lögð á mikilvægi þess að vera læs á upplýsingar og miðla í nútíma samfélagi. Fjölmiðlalæsi, auglýsingalæsi, gervigreindarlæsi, myndlæsi o.fl. Fjallað er um hvernig algóritmar samfélagsmiðla virka og hvaða áhrif tæknin hefur á daglegt líf og líðan […]
Stolin athygli leitar eiganda síns

Hvað segja rannsóknir okkur um stöðuna á miðlanotkun barna á Íslandi í dag? Stolin athygli leitar eiganda síns tekur fyrir atriði í stafrænu umhverfi sem ber að varast auk þess að veita góð ráð varðandi notkun barna á skjátækjum og samfélagsmiðlum. Farið verður yfir hvernig tæki og öpp eru hönnuð til að grípa og stela athygli okkar. Hvað getum við […]
Gervigreindarlæsi

Markmiðið er að efla vitund, skilning og valdefla notendur þegar kemur að gervigreind. Áhersla er lögð á örugga og ábyrga notkun gervigreindar, og þátttakendur fá tækifæri til að skoða myndir og myndbönd til að efla hæfni sína til að greina hvað er raunverulegt efni og hvað ekki. Þá er einnig fjallað um gagnrýna hugsun við notkun gervigreindarmállíkana, eins […]
Rauðu flöggin

Í þessu fræðsluerindi kynnast þátttakendur helstu áskorunum og því sem ber að varast í stafrænu umhverfi, svokölluðum „rauðum flöggum“ á netinu. Erindið fjallar meðal annars um netsvik, þar á meðal ástarsvik, netveiðar og fjársvik á netinu, auk falsfrétta og upplýsingaóreiðu sem birtast okkur á stafrænum miðlum. Einnig er fjallað um áhrif og virkni algóritma samfélagsmiðla og gervigreind og þær áskoranir sem henni tengjast í upplýsingamiðlun og dreifingu efnis. Markmið fræðslunnar er að efla […]
Hvað er málið með þessar kökur?

Hvað er það sem við erum að samþykkja þegar við samþykkjum allar vefkökur? Er hægt að hafna þeim öllum? Í erindinu er farið yfir mismunandi tegundir af kökum á netinu til þess að þátttakendur öðlist þekkingu á eðli, virkni og nauðsyn hverrar tegundar fyrir sig. Hvað getum við gert til að taka betur stjórn og vernda upplýsingarnar um […]