Need help?

1717 Helpline

112 in emergencies

Eldra fólk

Verum örugg á netinu

Netið er stór hluti af daglegu lífi flestra. Þar eigum við samskipti, leitum upplýsinga og sinnum ýmsum erindum. En stundum getur verið erfitt að vita hverju er óhætt að treysta. Því er mikilvægt að þekkja hætturnar sem leynast gjarnan á netinu og kunna að bregðast við þeim. 

Hér finnur þú hagnýtar upplýsingar og einföld skref sem geta hjálpað þér að:

Hættur á netinu

Þrátt fyrir að netið sé frábært á margan hátt geta þar einnig leynst hættur. Óprúttnir aðilar nýta sér líka tæknina til svika, þá gjarnan til að hafa af okkur pening eða persónuupplýsingar.

Oft birtast netsvik okkur sem hver önnur skilaboð eða tilkynningar á netinu og er það með vilja gert til að við föllum frekar fyrir svikunum.

Það er góð regla að deila aldrei kortanúmerum, símanúmerum, heilsufarsupplýsingum og lykilorðum með fólki sem við þekkjum ekki á netinu

Rauðu flöggin

Hvað eru rauð flögg á netinu? Þegar við erum á netinu, hvort sem við erum að skrolla á samfélagsmiðlum, svara skilaboðum eða tölvupóstum er mikilvægt að vera með á nótunum. Temjum okkur að hafa alltaf augun opin fyrir rauðum flöggum, einhverju sem okkur þykir vafasamt eða óeðlilegt. Ef við rekumst á rautt flagg skulum við staldra við og skoða viðfangsefnið vel áður en við bregðumst við.  Með því að vera vakandi fyrir rauðu flöggunum getum við komið í veg fyrir að svikarar og aðrir óprúttnir aðilar hafi betur og takist að blekkja okkur.
Dæmi um rauð flögg geta verið:

Er hlekkur í skilaboðunum og þér gefnar leiðbeiningar að fylgja honum?

Það er dæmi um rautt flagg. Hlekkurinn gæti leitt á greiðslusíðu þar sem þú ert beðinn um kortaupplýsingar eða símanúmer fyrir rafræn skilríki. Hlekkur í skilaboðum einn og sér þarf ekki að þýða að um svik sé að ræða en þá er gott að athuga hvort það séu fleiri rauð flögg í skilaboðunum.

Verum vakandi fyrir rauðum flöggum á netinu

Við getum varist netsvikum með því að vera upplýst um hvernig þau birtast okkur og á hvaða forsendum.

Eitt rautt flagg þarf ekki að þýða að um svik sé að ræða.

En séu mörg rauð flögg til staðar er best að staldra við og athuga málið.

Netsvik

Mikilvægt er að muna að netsvik snúast um að plata fólk. Við sjálf erum besta vörnin.  
Til eru margar tegundir af netsvikum en þær helstu eru:

Stundum reyna svikarar að ná til okkar með SMS skilaboðum þar sem okkur eru gefnar leiðbeiningar sem yfirleitt ganga út á að hafa af okkur persónuupplýsingar eða pening.

Skilaboðin geta virst vera frá fyrirtækjum, ríkisstofnunum eða einstaklingum. Oft geta þetta verið einstaklingar sem við þekkjum en einhver hefur tekið yfir aðganginn þeirra og sent okkur skilaboð í þeirra nafni.

Skilaboðin innihalda oft „áríðandi“ upplýsingar eða spurningar eða hlekki sem þér er bent á að fylgja.

Ef þig grunar að þér hafi verið send svikaskilaboð skaltu ekki svara þeim heldur tilkynna atvikið til lögreglu.

Tilkynningargátt lögreglunnar

Tilkynntu til lögreglu ef peningum var stolið af þér á netinu, til dæmis af korti eða bankareikningi, með fölsuðum skilaboðum, á vefverslun, með fjárkúgun, ástarsvikum eða á annan hátt. Jafnvel þó þú hafir ekki tapað peningum er gott að senda ábendingu til lögreglunnar um tilraun til svika. Þú getur tilkynnt málið hér eða á næstu lögreglustöð.

Á vef lögreglunnar má finna fræðslu um ýmsar tegundir fjársvika eins og samskiptasvik, kortasvindl og fleira.

Tilkynna fjársvik til lögreglu

Gátlistar fyrir rauð flögg

Fékkstu sendan hlekk? Það þýðir ekki endilega að um netsvik sé að ræða.Fékkstu skilaboð frá ókunnugum? Ekki heldur gefið að það sé svikahrappur. En ef ókunnugur aðili sendir þér hlekk, biður um kortaupplýsingar og segir þér að bregðast við hratt þá erum við komin með ríka ástæðu til að stoppa og kanna málið betur áður en við höldum áfram. Rauðu flöggin hjálpa okkur að meta áhættuna, ekki dæma út frá einu atriði.

Ráð!: Förum sjálf inn í netvafra og sláum inn vefslóðinni sjálf

Svikarar lokka fólk til sín með einhverju sem virðist heillandi

Oft myndast náin tengsl og traust. Okkur eru hrósað og veitt mikil athygli.

Loforð um peninga eða verðlaun, t.d. að vinna í lottó eða vinna í gjafaleik.

Oftast er reynt að vekja upp tilfinningar sem fá okkur til að bregðast við eins og svikararnir vilja.

Hvað á ég að gera ef ég er búin/n að smella?“

1. Stöðvaðu samskiptin. Ekki senda fleiri upplýsingar, peninga eða staðfestingar. Ekki eyða samskiptunum því þau gætu verið sönnunargögn. 2. Tryggðu aðganginn. Hafðu samband við bankann ef greiðsluupplýsingar eða peningar koma við sögu. Skiptu um lykilorð ef þú hefur gefið það upp. Ef þú settir upp grunsamlegt forrit skaltu hætta að nota það og fáðu aðstoð við að yfirfara tækið. 3. Leitaðu aðstoðar. Tilkynntu svikin til viðeigandi aðila, varðveittu gögn og fáðu hjálp við að takmarka tjónið.
Hafa samband við banka:
Landsbankinn

Sími: 410 4000
Opnunartími: Alla daga kl. 9–23. Utan opnunartíma er neyðarþjónusta Visa-korta í síma 525 2000.
Netfang: svikavakt@landsbankinn.is
Neyðarlokun: Í appinu er hægt að loka öllum kortum, appi og netbanka í einu.

Íslandsbanki

Sími: 440 4000
Opnunartími: Allan sólarhringinn vegna neyðartilfella.
Neyðarlokun: Í appinu er hægt að frysta kort og skrá út öll innskráð tæki.

Arion banki

Sími: 444 7000
Opnunartími: Virka daga kl. 9-16. Utan þess tíma er hægt að ná sambandi við neyðarþjónustu í síma 525 2000
Netfang: netsvik@arionbanki.is
Neyðarlokun: Í appinu er hægt að frysta kort.

Indó

Sími: 588 4636
Opnunartími: Virka daga kl. 9–16.
Netfang: hallo@indo.is
Neyðarlokun: Á vefnum indo.is/neydarlokun er hægt að frysta kort strax, bæði plastkort og stafrænt kort í síma.

Kvika

Sími: 540 3200
Netfang: thjonusta@kvika.is
Neyðarlokun: Á vef Kviku getur þú framkvæmt neyðarlokun á kortinu þínu sem gerir það að verkum að ekki er hægt að framkvæma neinar færslur, hvort sem það er í posa, net eða hraðbanka. 

Sparisjóðurinn

Sparisjóður Austurlands
Sími: 470 1100 - Netfang: sparaust@sparaust.is
Sparisjóður Suður-Þingeyinga
Sími: 464 6200 - Netfang: spthin@spthin.is
Smári Sparisjóður
Sími: 460 9400 - Netfang: smari@smari.is

Educational material

Below you will find a variety of educational resources.

Themes

Themes

Let's be smart and use the internet wisely

While the internet has many positive aspects, there are also things to watch out for. Old problems such as bullying, prejudice, hate speech, misinformation, and violence have found a new outlet online, where they spread faster and wider than before. Growing up in a digital world can therefore be complicated. That is why it is important to get guidance and remember that you can always ask for help when facing difficulties. Below you will find various educational materials related to internet safety in one way or another, along with information on where to seek help.

Search on Netvís.is

Would you like to receive the latest news and educational material?

Fill out the form with your information and we will contact you as soon as possible.

Inquiry about education

Fill out the form with your information and we will contact you as soon as possible.

Fields marked with an asterisk* are required.

We have received your request!

We use cookies

We use cookies to improve your experience on the website and collect information to improve our content.