Vantar þig aðstoð?

1717 hjálparsími

112 í neyð

Fræðsluefni

Aldursmerkingar – Tölvuleikir

PEGI stendur fyrir Pan European Game Information og er evrópskt aldursmerkingarkerfi fyrir tölvuleiki.

Tilgangur PEGI er að hjálpa foreldrum og öðrum að meta hvort tölvuleikir henti börnum á ákveðnum aldri.

PEGI 3

Leikir merktir PEGI 3 eru álitnir við hæfi allra aldurhópa og eiga ekki að innihalda mynd- eða hljóðefni sem eru líkleg til þess að hræða ung börn ásamt því að óviðeigandi eða ljótt orðbragð skal ekki koma fram. Vægt ofbeldi (sem skop eða birt í barnalegu samhengi) gæti og má birtast í leiknum.


PEGI 7

Leikir sem innihalda mynd- eða hljóðefni sem er líklegt til að hræða yngri börn falla undir þessa merkingu. Vægt ofbeldi (gefið í skyn, óraunverulegt eða óskýrt) gæti og má birtast í leiknum.


PEGI 12

Leikir sem sýna ofbeldi í grófari og nákvæmari mynd í garð ævintýrapersóna eða óraunverulegt ofbeldi gagnvart mannlegum persónum falla undir þessa merkingu. Kynferðislegar vísanir og ögrandi tilburðir gætu og mega birtast í leiknum. Ljótt og óviðeigandi orðbragð sömuleiðis en skal vera vægt.


PEGI 16

Ofbeldi sem er raunverulegt og hermir eftir raunverulegu ofbeldi. Ljótt og óviðeigandi orðbragð má og getur verið grófara og notkun tóbaks, áfengis og ólöglegra fíkniefna gæti og má birtast í leiknum.


PEGI 18

Leikur fær fullorðinsmerkingu þegar ofbeldi hermir eftir raunverulegu ofbeldi sem er mjög ýtarlegt eða ofbeldi gagnvart varnarlausum persónum. Það sama á við um morð og manndráp. Neysla ólöglegra fíkniefna er upphafin og hermt er eftir fjárhættuspilum. Bersýnilegt kynferðislegt athæfi og kynlíf fellur undir þessa aldursmerkingu.


PEGI !

Þessi merking er einskonar viðvörun á miðla og forrit þar sem sterklega er mælt með eftirliti foreldra með börnum sem notendur, þar sem forritin geta innihaldið breitt úrval af efni sem er búið til af notendum (e. user generated). Á við um forrit eins og Facebook, Spotify og YouTube.


Innihaldslýsingar


Leikurinn inniheldur ofbeldi

Í leikjum sem eru merktir PEGI 7 má ofbeldi vera óraunverulegt eða ónákvæmt. Í leikjum sem eru merktir PEGI 12 má ofbeldi vera í ævintýrasamhengi eða óraunverulegt sé það í garð mannlegra persóna. Leikir sem eru merktir PEGI 16 eða 18 innihalda raunverulegra ofbeldi.

Leikurinn inniheldur ljótt og óviðeigandi orðbragð.

Þessi merking finnst á leikjum sem eru merktir PEGI 12 (væg blótsyrði) eða PEGI 16.

Leikurinn inniheldur ótta/hrylling

Leikir sem innihalda hrylling eða mynd- og hljóðefni sem hræðir spilara. Getur verið á leikjum merktum PEGI 7 ef þeir innihalda efni sem getur hrætt yngri börn. Ótti eða hryllingur felur ekki endilega í sér ofbeldi.

Leikurinn inniheldur fjárhættuspil

Leikir sem innihalda fjárhættuspil. Fá alltaf merkinguna PEGI 12 ef vísað er í fjárhættuspil en þar sem er hermt nákvæmlega eftir fjárhættuspilum t.d. með spilavítum er merkingin PEGI 18.

Leikurinn inniheldur kynlíf eða kynferðislegt athæfi

Leikir sem innihalda vísanir í kynferðislega háttsemi eða tvíræðna brandara um kynlíf eru merktir PEGI 12. Ef nekt eða samfarir eru sýndar (í ónákvæmri mynd) er leikurinn merktur PEGI 16. Leikir eru merktir PEGI 18 ef kynlíf eða kynferðislegt athæfi birtist með skýrum hætti. Nekt ein og sér (sé hún ekki í kynferðislegu samhengi) krefst ekki sérstakrar aldursmerkingar.

Leikurinn inniheldur fíkniefni

Leikir sem innihalda notkun ólöglegra fíkniefna, áfengis eða tóbaks. Leikir sem innihalda slíkt eru alltaf merktir PEGI 16 eða 18.

Leikurinn inniheldur mismunun

Leikurinn inniheldur staðalímyndir sem tengjast þjóðerni, trúarbrögðum, þjóðernishyggju eða öðrum þáttum og eru líklegar til að ýta undir hatur. Leikir sem innihalda slíkt eru alltaf merktir PEGI 18.

Leikurinn býður upp á kaup innan leiksins

Leikurinn býður spilurum upp á að kaupa stafrænar vörur eða þjónustu í leiknum með alvöru peningum. Hægt er að kaupa aukaefni í leiknum (auka borð, fatnað, tónlist og annað) en auk þess er hægt að kaupa uppfærslur, áskriftir að uppfærslum, sýndargjaldmiðil (e. virtual coins/currency) og fleira.  


Önnur atriði (ný 2026):

  • Óvissukaup (paid random items) merkir þegar kaup innan leiksins innihalda tilviljunarkenndar vörur. T.d., lukkubox eða pakkatilboð. Hægt er að kaupa slíkar vörur með raunverulegum pening en líka sýndargjaldmiðli (þeim gjaldmiðli sem er notaðu í leiknum). Leikir sem innihalda óvissukaup eru alltaf merktir PEGI 16 eða 18.
  • Tímabundin tilboð (time-limited offers) merkir þegar aðeins er hægt að kaupa vörur í takmarkaðan tíma eða í takmörkuðu upplagi og getur ýtt undir pressu eða vakið upp tilfinningar um að bregðast þurfi strax við. Leikir sem innihalda tímabundin tilboð eru alltaf merkt PEGI 12 nema þegar foreldrastillingar bjóða upp á að slökkva á þeim, þá eru þeir merktir PEGI 7.
  • Rafmynt (cryptocurrency). Þegar leikir innihalda kaup og sölu á stafrænum vörum þar sem NFT (e. non-fungible token eða óskiptanleg tákn) eða álíka stafrænar eignir eru tengdar rafmynt. Leikir sem innihalda slíka eiginleika eru alltaf merktir PEGI 18.
  • Spilunarpressa (pressure to play) merkir þegar leikur inniheldur kerfi sem hvetja spilara til að snúa aftur í leikinn innan tiltekins tíma með því að veita þeim sérstaka umbun fyrir endurtekna spilun. Þessi kerfi geta falið í sér dagleg verkefni, umbun fyrir að skrá sig inn í leikinn marga daga í röð eða sérstaka umbun fyrir viðburði eða verkefni sem eru aðeins í boði í afmarkaðan tíma. Leikir sem innihalda slík kerfi eru merktir PEGI 7 nema ef spilarar eru sviptir umbun eða stöðu í leiknum ef þeir skrá sig ekki inn í tæka tíð, þá er leikurinn merktur PEGI 12.
  • Ótakmörkuð samskipti (unrestricted communication) er þegar það er ekki mögulegt að loka á eða þagga niður í samskiptakerfum í leiknum (í gegnum textaspjall eða raddsamskipti) eða það skortir umsjón (e. moderation) með slíkum samskiptum. Spilarar geta þá átt í óheftum samskiptum við aðra spilara. Leikir sem innihalda ótakmörkuð samskipti eru merktir PEGI 18.

Önnur verkfæri

Leitaðu á Netvís.is

Vilt þú fá nýjustu fréttir og fræðsluefni?

Fylltu út formið með upplýsingum um þig og við munum hafa samband við þig við fyrsta tækifæri.

Fyrirspurn um fræðslu

Fylltu út formið með upplýsingum um þig og við munum hafa samband við þig við fyrsta tækifæri.

Stjörnumerktar* línur er nauðsynlegt að fylla út.

Við höfum móttekið beiðnina!

Viltu láta fjarlægja nektarmynd af barni undir 18 ára aldri á netinu?

Hér getur þú fengið aðstoð við að fjarlægja myndir sem sýna nekt eða kynferðislegar/klámfengnar myndir og myndbönd á netinu sem teknar voru fyrir 18 ára aldur. Það er von og hér getur þú fengið hjálp Stöndum saman að vernd barna á netinu

Við notum vafrakökur

Við notum vafrakökur til að bæta upplifun þína á síðunni og safna upplýsingum til að bæta efni síðunnar.