SEXAN
Stuttmyndakeppni
Hvað er sexan?
Sexan stuttmyndakeppni er jafningjafræðsluverkefni fyrir börn og ungmenni á aldrinum 10 -16 ára, af öllum kynjum og ólíkum uppruna.
Meginþema Sexunnar 2027 er haturstjáning. Birtingarmyndir þess geta verið
– tæling á netinu
– upptaka og dreifing slagsmálamyndbanda
– beiðni um eða dreifingu nektarmynda
– persónuleg mörk/samþykki
Auk þess er opinn flokkur ef þig langar að fjalla um eitthvað sem þér þykir mikilvægt að öll börn og ungmenni viti um.
Stuttmyndin á að hafa skýrt forvarnar- og fræðslugildi. Hún á að vekja til umhugsunar, sýna afleiðingar og benda á örugg viðbrögð, stuðning eða leiðir til að leita hjálpar.
Opið verður fyrir innsendingar frá 9.febrúar 2027 til og með 9.apríl 2027.
Láttu rödd þína heyrast – taktu þátt í Sexunni 2027!
Hvernig tek ég þátt?
Fyrirkomulag Sexunnar er einfalt. Þú færð fræðslu í skólanum og/eða félagsmiðstöðinni um viðfangsefnin og býrð til stuttmynd um það sem þér finnst mikilvægt að fjalla um – en, stuttmyndin má að hámarki vera 3 mínútur að lengd.
Kennarar og leiðbeinendur þurfa að kynna sér leiðbeiningar Sexunnar um innihald, samþykki, myndatökur, persónuvernd og öryggi. Til að senda inn stuttmynd, þá hleðuru stuttmyndinni upp í gátt Netvís, sem opnast þann 9.febrúar nk. á heimasíðu netvis.is/sexan
Dómnefnd horfir á allar myndirnar og þann 20.apríl 2027 verður vegleg verðlaunaathöfn í Bíóparadís, þar sem verðlaunahafar hljóta vegleg verðlaun! Öll ungmenni sem taka þátt hljóta þátttökuviðurkenningu.
Tæknimál
- Best er að hafa myndina í „Landscape“ (16:9) og að upplausnin sé í 1920x1080px eða hærri.
- Það má líka taka upp og skila inn stuttmynd í “vertical” formi
- Númer Ábendingalínunnar og lógó Sexunnar eiga að birtast í lok stuttmyndarinnar. SEXUNNAR í lok myndarinnar (sem endaskilti). Hægt er að sækja það hér neðar á síðunni.
- Skráin sem þú skilar þarf að sýna heiti stuttmyndar, nafn skólans þíns og bekkjarins.
Hvað er haturstjáning?
Haturstjáning er orð sem notað er yfir ólíkar birtingarmyndir neikvæðrar tjáningar í garð annarrar manneskju.
Haturstjáning er algengust á netinu; í PM samskiptum, kommentakerfum og skilaboðum.
Í Sexunni er keppt í fjórum flokkum: tæling, nektarmynd, samþykki eða slagsmál ungmenna. Svo er opinn flokkur ef þú vilt senda eitthvað sem sýnir haturstjáningu á annan hátt.
Mundu að góð stuttmynd sýnir hvað aðrir geta gert til að hjálpa þeim sem verða fyrir haturstjáningu.
Kennsluleiðbeiningar
Stuttmyndin á að hafa skýrt forvarnar- og fræðslugildi. Hún á að vekja til umhugsunar, sýna afleiðingar og benda á örugg viðbrögð, stuðning eða leiðir til að leita hjálpar.
Áður en tökur hefjast
Þátttakendur og leiðbeinendur þurfa að kynna sér leiðbeiningar Sexunnar um innihald, samþykki, myndatökur, persónuvernd og öryggi. Ekki má sýna nekt barna, raunverulegt ofbeldi, sjálfsskaða, sjálfsvíg, hættuleg áhættuatriði eða annað efni sem getur skaðað þátttakendur eða áhorfendur. Viðkvæm atriði má gefa til kynna án þess að sýna þau með beinum eða raunsæjum hætti.
Ábyrgur fullorðinn einstaklingur þarf að fara yfir hugmynd og handrit áður en tökur hefjast. Allir sem koma fram í myndinni þurfa að samþykkja þátttöku og afla þarf samþykkis forsjáraðila samkvæmt reglum keppninnar.
Hér mun vera hægt að nálgast ítarlegan fræðslupakka fyrir kennara og leiðbeinendur. Um er að ræða:
– tenglar á frekara námsefni um viðfangsefni
– sjónvarpsþættir og annað myndefni sem styður við kennslu
– fræðsla um allar hliðar stuttmyndagerðar, frá handriti til eftirvinnslu
– aðgangur að fyrirlestrum fagaðila um viðfangsefnin
Dómnefnd og sigurmyndir
Þátttakendur hafa haft frjálsar hendur með handritagerð, framkvæmd og eftirvinnslu. Hver skóli hefur mátt senda að hámarki 3 myndir í keppnina en dómnefnd Sexunnar velur þrjár bestu stuttmyndirnar sem verða sýndar bæði í Bíóparadís, á Alþjóðlegri barnakvikmyndahátíð og streymisveitu hátíðarinnar, á vef UngRÚV og dreift í alla grunnskóla landsins sem fræðsluefni.
Vinningashafar 2025
Njarðvíkurskóli sigurvegari Sexunnar 2025
Njarðvíkurskóli sigraði Sexuna, stuttmyndakeppnina árið 2025 með stuttmyndinni Áhrif eineltis. Í öðru sæti var Hólabrekkuskóli með stuttmyndina Slagsmál en þriðja sæti hlaut Rimaskóli fyrir stuttmyndina Stafræn sár.
Hvatningarverðlaun Sexunnar eru einnig veitt fyrir eftirtektarverða tækninotkun, efnistök eða aðferðir. Hrafnagilsskóli hlaut Hvatningarverðlaun Sexunnar 2025 fyrir að tefla fram leikurum af erlendum uppruna í burðarhlutverk og sýna á skýran hátt hvernig ungmenni geta leitað aðstoðar í tilfellum stafræns ofbeldis.
Hér fyrir neðan má sjá verðlaunamyndir Sexunnar 2025.
Vinningashafar 2024
Smáraskóli vinningshafi Sexunnar 2024
Smáraskóli í Kópavogi var atkvæðamikill árið 2024 en nemendur í 7. bekk Smáraskóla hrepptu 1. sæti og 2. sætið auk hvatningarverðlauna.
Sigurmyndin heitir „Vinur í raun,“ stuttmyndin í 2. sæti heitir „Tæling“ og Í þriðja sæti var Hólabrekkuskóli með stuttmyndina „Samþykki.“
Hvatningarverðlaun Sexunnar 2024 voru veitt í fyrsta skipti en stuttmyndin „Segðu frá“ var best að mati dómnefndar.
Ungu kvikmyndagerðarfólkinu tókst að varpa ljósi á þemað í keppninni en myndin hvetur ungmenni til að segja einhverjum frá, hvort sem það er lögregla, kennari eða vinur af því að það er besta leiðin til að hjálpa öðrum í erfiðum aðstæðum.
Vinningashafar 2023
Selásskóli í Árbæ sigraði Sexuna 2023 með stuttmyndinni „Friend request“ sem fjallar um tælingu.
Í öðru sæti var stuttmyndin „Samþykki“ frá Heiðarskóla, Reykjanesbæ og þriðja sæti hlaut Suðurhlíðarskóli fyrir stuttmyndina „Tæling.“
Samstarfsaðilar
Ríkislögreglustjóri
Jafnréttisskóli Reykjavíkurborgar
Jafnréttisstofa
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu
Barna- og fjölskyldustofa
RÚV
Fjölmiðlanefnd
Samskiptaráðgjafi íþrótta- og æskulýðsstarfs
Barnaheill
Samfés