Kristín Ómarsdóttir hefur lokið BA gráðu í tómstunda- og félagsmálafræði frá Háskóla Íslands. Þá hefur hún lokið MPH gráðu í lýðheilsuvísindum frá Háskólanum í Lundi. Auk þess hefur Kristín lokið viðbótardiplóma í Farsæld barna frá Háskóla Íslands.
Kristín hefur mikla reynslu af starfi með börnum og ungmennum. Hún starfaði sem íslenskukennari, hefur haft yfirumsjón með frístundaheimili og félagsmiðstöð ungmenna og starfað sem æskulýðs- og tómstundafulltrúi. Þá hefur Kristín sinnt margvíslegri ráðgjöf og stuðningi við bæði foreldra og börn. Kristín hefur mikla reynslu af því að flytja fyrirlestra og fræðsluerindi fyrir ólíka hópa auk þess sem hún hefur birt ýmsa pistla og greinar.
Hún sá um innleiðingu farsældar barna í heilsugæslustöðvum á landsvísu þar sem reyndi á stefnumótun, uppbyggingu verkferla auk þess sem um var að ræða umfangsmikla fræðslu og kynningarstarfsemi fyrir starfsfólk heilsugæslustöðva.