Líttupp – Ertu að missa af einhverju?
Netvís – Netöryggismiðstöð Íslands hefur í samstarfi við auglýsingastofuna PIPAR/TBWA og Skot Productions sett af stað nýja vitundarvakningu undir heitinu Líttupp. Markmið herferðarinnar er að hvetja okkur öll – börn, ungmenni og fullorðna – til að staldra við, líta upp úr skjánum og taka virkari þátt í lífinu í kringum okkur.
Með Líttupp viljum við skapa samtal um heilbrigðari og ábyrgari tækjanotkun, jákvæð samskipti og kosti þess að vera meira til staðar í raunheimum. Snjalltæki eru orðin órjúfanlegur hluti daglegs lífs, en þau eru líka hönnuð til að fanga og halda athygli okkar. Með herferðinni viljum við valdefla okkur sem notendur og hvetja til þess að við nýtum tímann frekar en að drepa hann. Að taka stjórnina í eigin hendur í stað þess að láta tækin stjórna okkur – og leggja þannig okkar af mörkum til heilbrigðara stafræns samfélags.
„Líttupp er ekki herferð gegn tækninni – heldur fyrir fólkið. Hún snýst um að valdefla okkur öll sem notendur og hvetja okkur til að nota tæknina á okkar eigin forsendum, frekar en að láta hana stjórna okkur,“ segir Unnur Freyja Víðisdóttir, sérfræðingur hjá Netvís.
Sem hluti af herferðinni eru veitt gagnleg ráð um hvernig við getum betur tekið stjórn á okkar eigin tækjanotkun, svo sem með því að:
- Stilla símann á „Do Not Disturb“ þegar við viljum fá frið
- Skoða skjátímann okkar og meta hvort við séum að nýta þann tíma vel
- Setja okkur raunhæf mörk þegar kemur að notkun samfélagsmiðla
- Slökkva á óþarfa tilkynningum
- Snúa símanum á hvolf þegar við eigum samverustundir með öðru fólki
Þá hvetur Líttupp herferðin okkur til að spyrja okkur sjálf spurninga eins og:
„Hvenær er ég að nota skjátæki – og í hvaða tilgangi?“
„Hvernig líður mér eftir langan skjátíma?“
„Er ég að nota tækið eða er það að nota mig?“
Herferðin minnir á að snjalltæki og samfélagsmiðlar eru hannaðir til að vekja upp tilfinningar og halda okkur föngnum með stöðugum tilkynningum, umbunum og nýju efni. Með því að vera meðvituð um þessar hönnunaraðferðir getum við tekið skref í átt að aukinni innri ró, betri nærveru og dýpri tengslum – bæði á netinu og utan þess.
Með Líttupp viljum við ekki bara vekja athygli – heldur valdefla fólk til að vera hluti af breytingunni. Með litlum skrefum í daglegu lífi getum við öll stuðlað að heilbrigðara og mannlegra stafrænu samfélagi.
Verkefnið er unnið af PIPAR/TBWA og Skot Productions fyrir Netvís – Netöryggismiðstöð Íslands, með styrk frá Menningar- og viðskiptaráðuneytinu.
Ljósmyndari er Bernhard Kristinn, og tónlistina samdi Jóhannes Damian Patreksson, betur þekktur sem JóiPé.