Need help?

1717 Helpline

112 in emergencies

Educational material

GTA 6

Í tölvuleiknum Grand Theft Auto 6 ráfa spilarar frjálst um opnu veröldina Leonida – skáldað fylki sem sækir innblástur til Flórída í Bandaríkjunum. Spilarinn spilar einn og getur hvorki hitt aðra spilara í leiknum né átt samskipti við aðra sem spila leikinn á sama tíma. Í leiknum setur spilarinn sig í hlutverk tveggja aðalpersóna, glæpamannanna Jason Duval og Luciu Caminos. Höfuðstöðvarnar eru í skálduðu borginni „Vice City “  sem minnir mjög á stórborgina Miami – neon ljós, strendur, næturlíf, bílar og fleira.

Spilarinn stýrir Jason og Luciu í gegnum söguþráð sem fjallar að mestu um ofbeldi, rán og aðra skipulagða glæpastarfsemi. Stór hluti sögunnar gerist í undirheimum Leonida þar sem eiturlyf, áfengi, dópgreni og gróft ofbeldi eru áberandi. Á milli þess sem spilarinn stýrir Jason og Luciu í glæpum getur hann látið þá vafra um Leonida t.d. að spila körfubolta, veiða fisk, keppa í kappakstri en einnig heimsækja næturklúbba og nektarbúllur og átt í kynferðislegum og rómantískum samböndum og athöfnum. Töluvert er um nekt og kynferðislegt efni í leiknum og búast má við að spilarar verða vitni að kynlífi og vændi og hafi einnig sjálfir þann möguleika að stunda kynlíf og kaupa vændi. Þá er ljótt orðbragð algengt í leiknum.  

Aldurstakmarkanir  

Leikurinn er merktur 18 ára og eldri samkvæmt evrópska aldursmerkingarkerfinu PEGI og því bannaður fyrir öll börn.

Age limit:

18+

Mikilvægt fyrir foreldra 

  • Leikurinn er alls ekki ætlaður börnum yngri en 18 ára 
  • Leikurinn inniheldur gróft ofbeldi, kynferðislegt efni, fíkniefnanotkun og mikið af glæpum 
  • Spilurum er frjálst að gera nánast hvað sem er í opna heiminum sem leikurinn býður upp á  
  • Seinna meir verður hægt að spila með öðrum (e. Online) 
  • Umfangið verður mikið og leikurinn verður mjög fyrirferðarmikill í umhverfi barna og unglinga í kringum útgáfuna 

Other tools

Search on Netvís.is

Would you like to receive the latest news and educational material?

Fill out the form with your information and we will contact you as soon as possible.

Inquiry about education

Fill out the form with your information and we will contact you as soon as possible.

Fields marked with an asterisk* are required.

We have received your request!

Do you want to have a nude photo of a child under the age of 18 removed online?

Here you can get help removing nudity or sexual/pornographic images and videos online that were taken before the age of 18. There is hope and here you can get help Let's stand together to protect children online.

We use cookies

We use cookies to improve your experience on the website and collect information to improve our content.