Lykilstarfsmenn innan stjórnsýslunnar æfðu viðbrögð við undirróðursherferðum erlendra ríkja
Dagana 7. og 8. október stóðu Fjölmiðlanefnd og Ríkislögreglustjóri fyrir tveggja daga námskeiði fyrir lykilstarfsmenn innan stjórnsýslunnar, þar sem fjallað var um hvernig greina og bregðast megi við undirróðursherferðum og upplýsingaaðgerðum erlendra ríkja. Námskeiðið var haldið í Menntasetri lögreglunnar og leitt af sérfræðingum frá Myndigheten för psykologiskt försvar (The Swedish Psychological Defence Agency).
Markmið námskeiðsins var að efla þekkingu og hæfni stjórnvalda til að bregðast við tilraunum erlendra ríkja til að hafa áhrif á skoðanir, hegðun og ákvarðanir almennings með rangfærslum, áróðri eða öðrum aðferðum sem grafa undan trausti á stofnunum og lýðræðislegum ferlum. +
Á námskeiðinu var farið yfir dæmi um slíkar áhrifaaðgerðir og hvernig þær birtast í samtímanum – meðal annars í gegnum fjölmiðla og samfélagsmiðla. Þátttakendur unnu raunhæfar æfingar, skoðuðu mismunandi viðbragðsleiðir og fengu innsýn í hvernig styrkja megi seiglu samfélagsins gagnvarkt skipulögðum upplýsingaaðgerðum.
Sérfræðingar frá sænsku stofnuninni Myndigheten för psykologiskt försvar, sem heyrir undir varnarmálaráðuneyti Svíþjóðar, stýrðu námskeiðinu. Stofnunin hefur það meginhlutverk að efla getu sænskra stjórnvalda, fjölmiðla og almennings til að verjast áhrifaaðgerðum sem miða að því að veikja lýðræðislega samheldni eða traust á opinberum stofnunum.
Námskeiðið er hluti af víðtæku samstarfi Fjölmiðlanefndar og Ríkislögreglustjóra um fræðslu og forvarnir á sviði upplýsingaöryggis og miðlalæsis, með það að markmiði að styrkja íslenskt samfélag gagnvart fjölbreyttum áskorunum stafræns tíma.