Author Archives: visnet

Lykilstarfsmenn innan stjórnsýslunnar æfðu viðbrögð við undirróðursherferðum erlendra ríkja

Dagana 7. og 8. október stóðu Fjölmiðlanefnd og Ríkislögreglustjóri fyrir tveggja daga námskeiði fyrir lykilstarfsmenn innan stjórnsýslunnar, þar sem fjallað var um hvernig greina og bregðast megi við undirróðursherferðum og upplýsingaaðgerðum erlendra ríkja. Námskeiðið var haldið í Menntasetri lögreglunnar og leitt af sérfræðingum frá Myndigheten för psykologiskt försvar (The Swedish Psychological Defence Agency). Markmið námskeiðsins […]

Líttupp – Ertu að missa af einhverju?

Netvís – Netöryggismiðstöð Íslands hefur í samstarfi við auglýsingastofuna PIPAR/TBWA og Skot Productions sett af stað nýja vitundarvakningu undir heitinu Líttupp. Markmið herferðarinnar er að hvetja okkur öll – börn, ungmenni og fullorðna – til að staldra við, líta upp úr skjánum og taka virkari þátt í lífinu í kringum okkur. Með Líttupp viljum við skapa samtal um heilbrigðari og ábyrgari tækjanotkun, jákvæð samskipti og kosti þess að vera meira til staðar í raunheimum. Snjalltæki eru orðin órjúfanlegur hluti daglegs lífs, en þau eru líka hönnuð til að fanga og halda athygli okkar. Með herferðinni viljum við valdefla okkur sem notendur og hvetja […]

Ungt fólk með ákall til fullorðinna

Þegar ungt fólk fær tækifæri til að láta raddir sínar heyrast færumst við nær raunverulegum lausnum. Það sannaðist á málþingi í Grósku 22. október síðastliðinn þegar ungmenni áttu sviðið og skiluðu skýru ákalli til fullorðinna: að axla ábyrgð og vinna með þeim að því að skapa heilbrigðara samfélag, bæði á netinu og utan þess.  Stafræn velferð eitt af stærstu lýðheilsumálum samtímans  […]